ÚTSALA, útsala! Ný vín á vínútsölunni
29. janúar 2012 | 13:10

Tvöfalt VÍN MÁNAÐARINS frá Sikiley

320vn~1

Lífrænu vínin frá Valdibella frá Sikiley fá fallega umfjöllun í Gestgjafanum.

Rósavínið Dhyana og rauðvínið Jaki fá fjögur glös af fimm og nafnbótina VÍN MÁNAÐARINS. Hvítvínið Ariddu fær þrjú og hálft glas.

Í stuttu máli er það hreinleiki vínanna m.a. sem fangar vínsmakkara tímaritsins.

Hrein, vegna þess að þau endurspegla af einlægni uppruna sinn, Sikiley, og þrúgurnar sem í þau fara svo vel. M.ö.o. eru ekki andlaus iðnaðarvín.

Hrein, vegna þess að þau eru framleidd af virðingu fyrir náttúrunni og laus við ónáttúrlega ofurmeðhöndlun úti á vínekru sem inni í víngerð.


14. nóvember 2011 | 08:08

Hin hérumbil árlega ÚTSALA

Útsalan er hafin.

Eins og venjulega er hægt að panta útsöluvínin hér á síðunni okkar og fá síðan send í Vínbúð að eigin vali.

Lágmark 12 flöskur, bland í poka.

utsala

 


07. ágúst 2011 | 20:49

Melónur og fleira frá Sikiley

valdibella_baendurBlóðappelsínurnar sem við fluttum inn frá Sikiley í vetur slóu í gegn í Frú Laugu. Margir töluðu um bestu appelsínur sem þeir höfðu smakkað og flestir voru ánægðir að sjá loksins aftur blóðappelsínur á landinu.

Við vorum afskaplega ánægð með þau viðskipti og ekki spillti fyrir að uppruninn er þessi fallega vina-eyja okkar í suðrinu sem á það skylt við Íslandið góða að spúa eldi og ösku öðru hvoru yfir fólk og sveitir.

Blóðappelsínurnar verða hér aftur í kringum jólin.

En þessi póstur átti ekki að fjalla um þessar rauðu elskur heldur annan ávöxt og öllu stærri.

Melónur.

Eftir rúma viku kemur bretti af sikileyskum, gulum melónum í Frú Laugu sem við flytjum inn sjálf eins og appelsínurnar. Þær eru lífrænt vottaðar og koma frá samlagi nokkurra bænda í Camporeale u.þ.b. 35 kílómetra frá Palermo. Með í för verður ólífuolía frá bændunum, möndlur og þrjú vín sem fara í Vínbúðirnar 1. október. Allt lífrænt.

Nú verður spennandi að sjá hvort melónurnar standast væntingar og þá geta þær orðið fastur liður á ítalska ávaxtadagatalinu okkar.


26. apríl 2011 | 21:43

Besta rósavínið í Vínbúðunum — "líklegast"

gourgonnier_rose_litilMas de Gourgonnier rósavínið er VÍN MÁNAÐARINS í nýjasta Gestgjafanum.

"Líklegast besta rósavínið sem fæst í Vínbúðunum" stendur þar skrifað.

Því miður munu ekki margir þora að prófa þessa bleiku fegurð.

Rósavín eru einfaldlega bara ekki "inni" en sú hugmyndafræði byggir á einhverri gamalli þjóðsögu sem er kominn tími á að endurskrifa.

Vertu öðruvísi, drekktu rósavín.

Tja, amk. eina (þessa) til að prófa.

Mas de Gourgonnier rósavín - 4 1/2 glas VÍN MÁNAÐARINS.
Mas de Gourgonnier er eina vínhúsið frá Provence í Vínbúðum og hefur verið nánast alla tíð. Þetta er þekkt fjölskylduhús í St. Rémy de Provence sem hefur verið með lífrænt síðan 1975 (þannig að jarðvegurinn er með besta móti næringarríku) og framleiðir hefðbundin rauð-, hvít- og rósavín þó í mismunandi AOC. Rósavínið er AOC Baux de Provence eins og rauðvínið og þrúgurnar eru grenache, syrah, cinsault, carignan og mourvédre. Enda er vínið margslungið, með mikinn karakter, ilmandi af litlum, rauðum berjum, fíngert og virkilega aðlaðandi. Þetta er vandað vín, þurrt en ávaxtaríkt, alvöru matarvín sem hentar á sumrin með Miðjarðarhafsréttum en allt árið með austurlenskum mat eða grilluðum fiski og grænmeti. Rósavín er allt of vanmetið hér heima.
Okkar álit. Yndislegt, fágað og vandað matarvín - þar að auki lífrænt. Líklega besta rósavínið sem fæst í Vínbúðunum.
Verð: 2.980 kr.


21. apríl 2011 | 11:31

Sandrone á sínum stað

Bloggarinn er nú búinn að vera að flytja inn vín í 8 ár. Hann hefur rekist á margt áhugavert á þeim tíma og hluti af því hefur skilað sér í Vínbúðirnar. Sumt staldrar stutt við og þá tekur eitthvað annað spennandi við. Bloggarinn á jú stundum erfitt með sig þegar hann finnur eitthvað nýtt og spennandi sem hann bara verður að flytja til landsins. Svo er reyndar önnur ástæða fyrir því að hlutir staldra ekki lengi við í Vínbúðunum þótt bloggarinn vildi en stefna hans og ÁTVR fara einhverra hluta vegna ekki alltaf saman í þeim málum.

sandrone_cannubi_boschis_minniEn svo eru vín sem hafa aldrei farið neitt. Vín sem bloggarinn flytur inn aftur og aftur jafnvel þótt sölutölur og markmið Vínbúðanna séu ekkert endilega í takt við þessa konar þrjósku.

Sum vín eiga einfaldlega erindi.

Ekki það að við gætum nokkurn tímann flutt inn vínin hans Luciano Sandrone í miklu magni. Við fáum bara árlegan skammt sem Sandrone fjölskyldan ákveður og við getum aðeins fínstillt hann á hverju ári.

Og ...

Hinn árlegi skammtur Sandrone var að detta inn. Hann er svipaður og í fyrra, 300 flöskur sem skiptast í 30 fl. Barolo Cannubi Boschis 2006, 30 fl. Barolo Le Vigne 2006, 120 fl. Barbera d'Alba 2008 og 120 fl. Dolcetto d'Alba 2009.

Af þessum vínum fást aðeins Dolcetto og Barbera í Vínbúðunum (Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi + Dolcetto líka í Borgartúni). Barolo vínin fást þar ekki og reyndar hefur Cannubi Boschis aldrei fengist í Vínbúðunum heldur aðeins með sérpöntun eins og nú.

Hvað er það sem veldur þessari þrjósku bloggarans að halda áfram að flytja inn vínin þrátt fyrir brösótt gengi í Vínbúðunum?

Það fer ekki framhjá neinum sem rétt svo rekur nefið inn í dyragættina á vínheimi Piemonte héraðsins og hinna rómuðu Barolo-vína að Luciano Sandrone er einn sá allra hæst skrifaði. Mígrútur af víndómum liggja því til staðfestingar, eiginlega eru þeir orðnir svo fastur liður að bloggarinn nennir varla lengur að minnast á þá á hverju ári.

En þeir eru ekki sjálfsagður hlutur.

sandrone_barolo_le_vigne_minniLuciano Sandrone, bróðirinn Luca og dóttirin Barbara vinna hörðum höndum að því að búa til vín sem skara fram úr. Ekki bara fyrir stærð og kraft þótt þetta séu engir ræflar heldur vegna hinnar sérstöku fágunar og fegurðar sem einkennir stíl hússins, ár eftir ár.

Bloggarinn getur því ekki hætt að flytja þau inn.

En svona aðeins til að leyfa erlendu vínpressunni að botna þennan póst — hér eru nýjustu víndómarnir:

Barolo Cannubi Boschis 2006
Wine Advocate 97 stig "seductive, round and sweet"
aðrir dómar

Barolo Le Vigne 2006
Wine Advocate 96 stig "balance is impeccable"
aðrir dómar

Barbera d'Alba 2008
Wine Advocate 90 stig "beautifully pointed, focused wine"
aðrir dómar

Dolcetto d'Alba 2009
Wine Advocate 88 stig "powerful, structured wine"
aðrir dómar


18. apríl 2011 | 13:42

Íslenska geitin leitar eftir stuðningi — Stofnfundur um Geitafjársetur Íslands á Háafelli

Í vetur fengum við fyrstu sendingu frá Jóhönnu á Háafelli, geitaís.Vonandi er það upphafið af frekara samstarfi því Frú lauga vill gjarnan bjóða upp á geitakjöt ofl. geitaafurðir frá Háafelli í framtíðinni.

Nú stendur til að blása til sóknar og stofna Geitafjársetur á Háafelli til að styðja við Jóhönnu og geiturnar hennar.

Fundurinn er á morgun, 19. apríl, kl. 17.30 í Friðarhúsinu á Njálsgötu 87.

Okkur barst þessi texti frá stuðningsaðila og birtum hann hér með leyfi:

"... Hið íslenska geitfjársetur. Það á að vera staðsett að Háafelli í Hvítársíðu og mun starfsemi þess einkum varða varðveislu og fjölbreyttni íslenska geitastofnsins. Hugmyndir eru uppi um að gera Háafell að búi þar sem fólk geti komið og skoðað íslensku geitina í mikilli nálægð sem og að koma þar fyrir aðstöðu til framleiðslu afurða. Þessi hugmynd hefur nú þegar fengið stuðning frá samtökunum Beint frá býli og munu þau samtök taka þátt í stofnun félagsins.

Í dag stendur vá fyrir dyrum þessa bús og ekki er langt í að Jóhanna missi það ef ekkert verður að gert. Áhugaleysi stjórnvalda í gegnum tíðina hefur gert það að verkum að samkeppni við aðrar afurðir sem njóta niðurgreiðslu eru nánast ómögulegar og því er illa fyrir stofninum komið.

Starfsemi félagsins mun ganga út á að ráðast í endurbætur á húsakostum og reisa við búið ferðamannaaðstöðu með eldhúsi til þess að möguleiki sé á því að það standi undir sér fjárhagslega og í leið að tryggja viðhald geitastofnsins til framtíðar.

Í dag eru um 600 geitur eftir á Íslandi og eru í kringum 150 staddar á Háafelli, þar af eru um 20 kollóttar en Jóhanna tók það upp á sitt einsdæmi fyrir nokkrum árum að bjarga þeirri grein stofnsins. Voru fjórar kollóttar geitur eftir þá. Jóhanna hefur einnig passað vel upp á ræktun stofnsins og notast hún við þónokkra hafra við sæðingu.

Aðferðir við fjáröflun og fleira: Geitfjársetur mun beita sér fyrir geitfjárrækt á nokkra vegu. Ein leiðin er þrýstingur á stjórnvöld, önnur er söfnun fjárs frá almenningi og fyrirtækjum og sú þriðja er rekstur geitfjárseturs."

Allir áhugasamir geta tekið þátt.


16. mars 2011 | 20:00

Eplin frá Ekkidal

biomela_dalurVið höfum tvisvar sinnum ekið í gegnum Trentino hérað á N-Ítalíu, bæði skiptin í vínerindum. Héraðið dregur svip sinn af Ölpunum sem standa eins og varðturnar sitt hvoru megin við langan og breiðan dal með litlum útskotum og hjáreinum hér og þar. Þessi hluti Alpanna er sérstaklega fallegur og áhrifamikill með sína karaktermiklu Dólómíta í aðalhlutverki.

Það er okkur minnistætt þegar við ókum þarna í gegn hversu áberandi eplarunnarnir voru. Ekki furða því Trentino er hjarta eplaræktunar á ítalíu með alls 10.000 hektara.

Af þessum 10.000 hekturum á Bonetti fjölskyldan 10. M.ö.o. litlir bændur á eplaskalanum.

Anna Bonetti og fjölskylda ræktar eplin sín í þeim hluta sem kallast Val di Non ("Ekki-dal"). Fyrir 25 árum hóf fjölskyldan samstarf við hina rómuðu San Michele landbúnaðarstofnun með það fyrir augum efla sjálfbærni akranna með nýtingu skordýra m.a. sem endaði á því að framleiðslan varð að öllu leyti lífræn og hefur svo verið í meira en 20 ár.

foradori_dalurÞað er skemmtileg tilviljun að Anna Bonetti og fjölskylda búa steinsnar frá annarri sterkri Alpakonu sem við þekkjum vel og reyndar heimsóttum. Sú heitir Elisabetta Foradori og höfum við flutt inn vínin hennar í mörg og stóð til, og stendur enn, að endurnýja sambandið við Elisabettu á þessu ári. Foradori vínin eru einmitt lífræn eins og eplin frá Bonetti svo það helst vel í hendur að tengjast þessum tveimur mögnuðu bændum og nágrönnum.

Eplin eru komin í Frú Laugu og eftir að vera búin að smakka okkur í gegnum þau erum við bjartsýn á að þeim verði eins vel tekið og hinum ljúffengu blóðappelsínum frá Sikiley. Þá munum við taka upp þráðinn næsta haust og flytja inn ný epli frá Trentino í nóvember með sikileyskum blóðappelsínum í kjölfarið í desember.

Eplin og appelsínurnar eru í "season" út vorið en þó með þeim hætti að appelsínurnar eru týndar jafn óðum og þær eru sendar til okkar á meðan eplin eru týnd að hausti en geymd við sérstakar aðstæður sem halda þeim góðum í fleiri mánuði.


01. mars 2011 | 14:49

Lífrænum uppfærslum lokið

Bloggarinn var að ljúka við að texta einn nýjasta framleiðandann, hinn franska Michel Guignier, og rauðvínin hans tvö Morgon Biovitis og Brouilly Les Amethystes.

guignier_morgon_midi

 


14. febrúar 2011 | 19:12

Frú Lauga fær nýja vefsíðu

Þeir sem hafa skoðað www.frulauga.is hafa eflaust rekið sig á ákveðið hreyfingarleysi frúarinnar þegar kemur að endurnýjun efnis á vefinn.

Nú stendur það allt til bóta.

Í smíðum er ný og betrumbætt síða þar sem upplýsingar um bændur og aðra góða framleiðendur verður í fyrirrúmi ásamt ljósmyndum. Bloggþátturinn verður sömuleiðis dreginn inn á síðuna sjálfa og á endanum verður www.vinogmatur.is settur í sama módel (og sérstök bloggsíða www.vinogmatur.wordpress.com hættir að vera til svona danglandi þarna út af fyrir sig). Ein stór fjölskylda, allir vinir.

Við erum með góða hugmyndahjálpara í þessari vinnu. Við gerum ekki ALLT sjálf. Ekki allt (kaupmaðurinn skúrar reyndar og þrífur Frú Laugu daglega svo hún verði hrein og ánægð með sig).

takkVinur okkar Valgeir Valdimarsson hjálpar okkur í hugmyndavinnu og útfærslum. Hann býr í París sem stendur og er sannkallaður kosmópólitan sem drekkur martini og reykir vindla. Valgeir rekur www.takktakk.is en fyrirtækið fékk nýlega (2011) verðlaun samtaka vefiðnaðarins fyrir herferðina www.icelandwantstobeyourfriend.com.

Annar vinur okkar kemur síðan að nánari fíníseringum í útliti og hugmyndavinnu. Sá heitir Einar og er nágranni okkar (m.ö.o. hann býr ekki París). Einar hannaði m.a. lógó Frú Laugu og á heiðurinn að því að setja "frúnna" fyrir framan "Laugu" þegar Frú lauga var bara Lauga á fyrstu hugmyndastigum. Hann er nýbúinn að stofna eigið fyrirtæki www.eogco.is sem er svo nýtt að það er ekki búið að vinn nein verðlaun ennþá.

Frú Lauga er í góðum höndum og býður spennt eftir endurkomunni á skjáinn.


23. janúar 2011 | 19:38

Salatdressing Rakelar

klettasalatFrú Lauga skrapp í viðtal til Sillu á Rúv Rás 1 þar sem salatdressing Rakelar kom m.a. til tals.

Hér má hlusta á þáttinn hennar Sillu og viðtalið

Salat er borðað á þessum heimili á næstum hverjum degi. Við notum salatblönduna góðu frá Hveratúni um vetur en þegar hlýnar notum við salat frá Engi eða útiræktað salat frá Vallanesi og fleiri góðum aðilum. Við ræktum líka oftast klettasalat í garðinum eða úti á svölum.

Það er því gott að gera smávegis dressingu sem lyftir salatinu á hærra plan frekar en stela senunni.

6-8 msk góð kaldpressuð jómfrúar ólífuolía
1 msk gott balsamik edik
Kreistur hvítlaukur - 2 góð rif (eða eftir smekk)
1 væn tsk. gott hunang
svartur pipar úr kvörn eftir smekk
sjávarsalt eftir smekk

Hrært saman með skeið og gaffli (gaffallinn situr ofan í skeiðinni meðan hrært er) þar til sósan verður þykk og jöfn.

Uppskriftin að ofan er sérlega góð en einnig er hægt er að skipta út balsamic ediki fyrir vínedik eða sítrónu, hvítlauknum fyrir sinnep, hunanginu fyrir hlynssýróp eða agavesýróp og svarta piparnum fyrir hvítan,rósapipar eða blandaðan pipar. Einnig má skipta út sjávarsaltinu fyrr Himalaya salt sem er einnig mjög gott og heilnæmt. Og nú er hægt að nota íslenskt reykjanessalt frá Kryddveislunni.

Það er varla til sá réttur þar sem er ekki viðeigandi að hrista fram ferskt og gott salat.


Næsta síða

Bloggið allt

Þú þekkir okkur á límmiðanum

Velkomin til Víns og matar.

Við erum lítið fjölskyldufyrirtæki sem flytur inn sérstaklega góð vín og svolítið af mat.

Ef þú sérð þennan miða á vínflösku í Vínbúðunum, ekki vera hræddur.

Þetta erum bara við.

Puttinn vísar þér veginn að góðu víni.

Meira um okkur


Viltu áskrift að Vínpóstinum?



Annað slagið sendum við út fréttabréf með helstu tíðindum.

Það er auðvelt að segja upp áskriftinni og við látum engan fá póstfangið þitt.

Áskrifendur eru nú 1.155.

Vertu með, við viljum ekki skilja neinn útundan.

Skoðaðu vínpóstana


NÝTT LÍFRÆNT Í VÍNBÚÐUNUM — 
Morgon Biovitis

Nýr fulltrúi er mættur í lífræna liðið.

Hann kemur frá Beaujolais en þaðan höfum við aldrei flutt inn vín áður.

Reyndar er þetta ekkert venjulegt Beaujolais né hið svokallað Beaujolais Nouveau heldur kemur þetta úr lávarðadeildinni - svokallað "cru" sem kennir sig við þorpið Morgon.

Morgon Biovitis 2009 (3.490 kr.) fæst í Vínbúðunum Kringlunni, Skútuvogi og Heiðrúnu.

Meða í för var annað "cru" frá framleiðandanum Michel Guignier, Brouilly 2009, en það er ekki með lífræna vottun eins og hitt.

Létt og dásamlega matarvæn - svona vín drekka Parísarbúar!

Meira um Combe Blanche


HRIKALEGA FLOTTIR DÓMAR — 
Ca Rugate á Vínótekinu

Steingrímur fjallar um þrjú vín frá Ca Rugate á Vínótekinu.

Soave Classico San Michele, Valpolicella Rio albo og Valpolicella Ripasso.

Þau fá öll fjórar stjörnur af fiimm mögulegum og yfir, með tilheyrandi lýsingum eins og "mjög góð kaup", "frábær kaup" og "hrikalega flott" ...!

Meira á blogginu

Skoðaðu nýjustu víndómana


Hafðu samband

Vín og matur 
Sundlaugavegur 20 
IS-105 Reykjavík

s: +354 693 7165
f: +354 534 7175
t: vinogmatur [hjá] vinogmatur.is

Meira um okkur


.
"But then of course Cassis tastes better at Cassis! Debussy sounds better after a walk through the foggy, puddled streets of latenight Paris. You are in the midst of the atmosphere that created it. The wine is not different, the music is not different. You are."
- Kermit Lynch