Arnaldo Caprai
  • Svæði: Úmbría
  • Eigandi: Arnaldo Caprai
  • Framleiðslustjóri: Marco Caprai
  • Stofnað: 1971
  • Framleiddar flöskur: 750.000
  • Hektarafjöldi: 150, þar af 136 af vínviði
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 80%
  • Vefur: www.arnaldocaprai.it

Sagrantino er ein sjaldgæfasta vínþrúga Ítalíu, hún finnst eingöngu í Úmbría-héraðinu og þekur aðeins um 100 hektara (af 16.503 hekturum vínsvæðis í Úmbría). Miðað við smæð hafa vínin sem við hana eru kennd þó náð athygli heimspressunnar og er það fyrst og fremst að þakka einum framleiðanda – Arnaldo Caprai.

Caprai hefur lagt mikla fjármuni í tækjakost sem og vísindalegar rannsóknir til að hámarka gæði framleiðslu sinnar. Virðing fyrir sögunni, landinu, þrúgunni og 100% fagmennska hafa borið árangur – ef lagðar voru saman einkunnir allra helstu víngagnrýnenda Ítalíu, m.a. Gambero Rosso og Vínþjónasambandsins, kom í ljós að 25 Anni var besta vín Ítalíu árið 2005. Hann hefur jafnframt verið kjörinn Besti Vínframleiðandi Ítalíu af ítalska Vínþjónasambandinu og nýlega hlaut hann mestu viðurkenningu allra ítalskra vínframleiðanda: Vínframleiðandi ársins 2006 á Ítalíu að mati Slow Food og Gambero Rosso.

Við rannsóknir er notaður sérstakur tilraunavínakur þar sem prófaðar eru ólík afbrigði Sagrantino þrúgunnar sem hverju er plantað við ólík skilyrði, þ.e.a.s. ýmsar tegundir af jarðvegi eru notaðar, 5 tegundir af vínviðsrótum, mismunandi þéttleiki plantna, ólíkar leiðir við uppröðun vínviðs osfrv. Niðurstöðurnar eru síðan notaðar … til að búa til enn betri vín.

 


View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map


Rauðvín

Sagrantino, 8.021 kr.

Sagrantino, 4.994 kr. 

Sangiovese, Sagrantino og Merlot, 2.898 kr.


Hvítvín 

Grechetto, 2.590 kr.


Caprai vinnur ötullega að því að koma vínum sínum á kortið. Á Vinitaly vínsýninguni í Veróna reisir hann árlega tveggja hæða sýningarbás og gerir 5 stjörnu veitingastað úr vörubíl úti á lóð sýningarsvæðisins eins og sjá má í þessu vídeói (ath! baksvipur bloggarans birtist á 25. sekúndu)


.
"But then of course Cassis tastes better at Cassis! Debussy sounds better after a walk through the foggy, puddled streets of latenight Paris. You are in the midst of the atmosphere that created it. The wine is not different, the music is not different. You are."
- Kermit Lynch