Artazu
  • Svæði: Navarre
  • Eigandi: Artadi víngerðin (Juan Carlos Lopes de la Calle)
  • Stofnað: 1996
  • Framleiddar flöskur: 280.000
  • Hektarafjöldi: 15
  • Meðalaldur vínviðar: 60 ára
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 30%


Artazu er rekið af sama eiganda og Artadi í Rioja. Þar eru einungis framleidd tvö rauðvín og eitt rósavín sem öll hafa hlotið spútnik dóma hjá Robert Parker. Vínið sem við flytjum inn, rauðvínið Artazuri, hefur hæst fengið 92 stig hjá Parker, rósavínið 89 stig og dýrara rauðvínið þeirra (fæst með sérpöntun) fékk nýlega 95 stig sem er mögnuð einkunn fyrir ekki dýrara vín.

Öll vínin eru úr Grenache þrúgunni og vínviður er mjög gamall, oft yfir 100 ára. Hann vex í um 4-600 metra hæð, suður af Pýraneafjöllum og norður af ánni Ebro. Framleiðandinn er kenndur við þorpið Artazu þar sem hann er staðsettur.



Rauðvín


Rósavín

Grenache, 1.300 kr.




"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway