Lífræn ræktun er í algleymingi hjá Mario Bisceglia. Það er því vel hugsað um vínekrurnar og ekki spillir fyrir að þær eru staðsettar í gömlum eldfjallajarðvegi í nágrenni við Vulture fjallið.
Hér svífur andi S-Ítalíu yfir vötnum og þrúgurnar sem Mario ræktar mest af eru dæmigerðar fyrir svæðið; Aglianico, Negroamaro, Primitivo, Falanghina og Fiano. Vínin eru ótrúlega heilsteypt með sinn suðlæga sjarma og fyrirtaks matarvín.
Mario hefur komið sér upp fullkominni víngerð sem sér til þess að lífrænt ræktuð vínberin fái viðeigandi meðhöndlun. Vínin koma flest frá heimasvæðinu en jafnframt af vínekrum í nágrannahéruðunum Puglia og Campania.
Mario rekur líka lítið hótel á landareigninni þar sem hægt er að njóta vínanna með matargerð héraðsins.
Okkur hefur lengi vantað góðan framleiðanda á S-Ítalíu sem uppfyllti gæðakröfur án þess að verða of dýr. Við erum því afskaplega ánægð að hafa loksins fundið hann, mitt í Basilicata héraði.

Rauðvín
Hvítvín
"These stylish wines reflect the personality of proprietor Mario Bisceglia and bode extremely well for the future."
Antonio Galloni - The Wine Advocate