Þótt fyrsti árgangur undir nafni Ca Rugate hafi ekki verið framleiddur fyrr en 1986 hefur Tessari fjölskyldan framleitt vín á svæðinu í yfir 100 ár. 2001 var byggð ný víngerð til að mæta vaxandi framleiðslu og auknum gæðakröfum.
Staðsetningin er mitt á milli Soave og Valpolicella svæðanna og framleiðslan skiptist nokkurn veginn jafnt þar á milli, um 60% Soave hvítvín og um 40% Valpolicella rauðvín (þ.á.m. Amarone).
Við hittum framleiðandann á Vinitaly vínsýningunni í Veróna og heilluðumst mikið af vínunum. Þau voru eitthvað svo þægilega laus við stæla fyrir utan að vera frábærlega vel gerð og með mikinn persónuleika.
Ca Rugate er ekki orðinn eins þekktur fyrir utan Ítalíu en þar í landi hefur hann hlotið mikið lof, ekki síst fyrir hvítvínin sem eru meðal þeirra sem hafa bætt gæði og ímynd Soave hvítvína.
View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map>

Rauðvín
Hvítvín