Casa de la Ermita
  • Svæði: Jumilla í Murcia
  • Eigandi: Pedro José Martínez Marín
  • Víngerðarmaður: Marcial Martínez Cruz
  • Stofnað: 1999
  • Framleiddar flöskur: 2.000.000
  • Hektarafjöldi: 170 af vínviði
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 80%
  • Vefur: www.casadelaermita.com

Pedro José Martínez Marín er eigandi Casa de la ErmitaFyrir örfáum árum var Jumilla ekki beinlínis á meðal þekktari vínræktarsvæða Spánar. Spænska vínbyltingin hefur hins vegar ekki látið þetta svæði ósnert og í dag er svæðið kjörlendi þeirra sem leita að miklum gæðum á góðu verði. Vínin eru gjöful, þykk og bragðmikil, og eikin oft áberandi.

Á sumrin verður afar heitt í Jumilla. Sólarstundir eru þar svo margar (um þrjú þúsund á ári, eða rúmlega átta á dag) að til að draga úr áhrifum sólarinnar eru flestar vínekrur í hlíðum sem vísa til norðurs frekar en til suðurs. Úrkoman er aðeins um 300 millimetrar á ári þrátt fyrir að vínekrurnar séu í 700-850 metra hæð. Hitastigssveiflur er miklar eða allt að 20 gráður milli dags og nætur, og á veturna getur líka orðið mjög kalt. Í heildina er veðurfarið þó fremur útreiknanlegt og geta því vínframleiðendur búið til góð vín með því að ganga út frá þessum öfgum sem gefnum.

Nokkrir framleiðendur eru í broddi fylkingar, þar á meðal Casa de la Ermita. Virðing Marcial Martínez Cruz og félaga fyrir eiginleikum náttúrunnar birtist í hinum mörgu lífrænu vínum sem þeir framleiða og því að vínframleiðsluferlinu er stjórnað af þyngdarlögmálinu.

Rauðvín


 


 


"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway