Það sem er svo merkilegt við Chateau de Flaugergues, skrautvillu í Toskana stíl, landareignin er mitt í úthverfi borgar, Montpellier, svona eins og Elliðaárnar okkar. Svæðið á sér 2000 ára vínræktarsögu allt frá því Rómverjar gróðursettu fyrsta vínviðinn, í gegnum miðaldirnar þegar munkarnir tóku við þar til einn forfaðir Colbert fjölskyldunnar, Etienne de Flaugergues, keypti slotið árið 1696. Henri de Colbert heldur þar um stjórnartaumana í dag, hann á sér annan ekki ómerkari forfaðir - Jean Babtiste Colbert sem var ráðherra undir Loðvíki 14. Skoðunaferðir eru boðnar um slotið og garðana og að sjálfsögðu fylgir vínsmökkun.
Héraðið er Languedoc, svæðið innan Languedoc sem landareignin er á heitir Grés du Montpellier og er það annars vegar kennt við borgina sem það hringar sig utan um, eina fegurstu borg Frakklands, og hins vegar við stóru, ávölu steinana, "grés" sem runnu frá Rhone ánni og þekja vínekrurnar á þessu svæði. Chateau de Flaugergues liggur nánar tiltekið á La Mejanelle, sem er hluti af Grés du Montpellier norð-austur af borginni. Steinarnir hitna mikið í sólinni og plöntunar framleiða þroskuð og áfengisrík vín.
Hinn ungi Pierre, sonur Henri, hefur sama brennandi áhugann og metnaðinn og faðirinn og er smám saman að taka yfir rekstur víngerðarinnar. Framtíðin er í öruggum höndum.

Rauðvín
Hér má skoða sjónvarp frá heimsókn okkar til vínframleiðenda í Frakklandi haustið 2008 (Flaugergues er fremst á ræmunni)