François Collard var reyndur í vínfræðunum áður en hann tók við sjórnartaumum víngerðarinnar af föður sínum árið 1994. Hann hafði þá þegar starfað sem blaðamaður, víngerðarmaður og landbúnaðarstjóri auk þess að hafa unnið og lært hjá Chateau Lafite-Rothschild.
Landareignin þeirra François og Anne, eiginkonu hans, er á besta stað í Costières de Nîmes. Vínekrurnar vísa til suðurs og steinarnir stóru og rauðu (galets rouges) sem einkenna bestu svæðin þekja þær. Sólin og hitinn er því mikill á þessum vínekrum enda mottó víngerðarinnar "ekkert án sólar". Mikill þroski, sultukenndur ávöxtur, hiti og krydd einkennir vínin þeirra, sérstaklega þau rauðu.
Galets rouges er grunnlína víngerðarinnar, síðan kemur Terre d'Argence fyrir ofan og Les Capitelles er efst. Framleiða þau rósavín, hvítvín og rauðvín í hverri línu. Það var ekki tilviljun sem réð því að ég smakkaði og flutti síðan inn vínin þeirra heldur voru það meðmæli úr hinum og þessum áttum og ábendingar um að þarna væri afar spennandi víngerð á ferðinni.

Rauðvín
Hvítvín
Hér má skoða sjónvarp frá heimsókn okkar til vínframleiðenda í Frakklandi haustið 2008 (Mourgues de Gres byrjar á 0:48).