Domaine Combe Blanche
  • Svæði: Languedoc
  • Eigandi: Guy Vanlacker
  • Stofnað: 1981
  • Framleiddar flöskur: 50.000
  • Hektarafjöldi: 12
  • Hlutfall eigin þrúga af framleiðslu: 100%
  • Vefur: www.lacombeblanche.com

Guy Vanlacker er Belgi í Frakklandi. Vínáhugamaður og kennari sem ákvað að söðla um og keypti nokkra hektara í Languedoc árið 1981. Síðan hafa nokkrir bæst við og spanna vínekrur nú alls 12 hektara þar af 6 hektara í Minervois (AOC), 2 í Minervois La Livinére (AOC) og 4 í Cotes du Brian (Vin de Pays).

La Combe Blanche er lítið þekkt víngerð sem við uppgötvuðum á vefsíðu bresks vínkaupmanns (sem er álíka skrítinn og við) og fannst áhugaverð. Úr varð skemmtilegur hittingur á veitingastað í Montpellier þar sem Guy töfraði okkur með mörgum skemmtilegum og mjög svo karaktermiklum vínum.

Þetta er ekta lítill, "artisan", framleiðandi eins og fleiri sem eru að verða svo einkennandi fyrir franska vínmenningu, vínmenningu sem berst kannski ekki svo ýkja mikið lengra út fyrir uppruna sinn en til Parísar. 

Hér ráða ríkjum hinar dæmigerðu suðrænu þrúgur Syrah, Grenache, Cinsault, Carignan, Roussanne og Viognier en líka aðkomugestir eins og Tempranillo og Pinot Noir.

Minervois svæðið þykir sýna hvað vín frá Languedoc héraðinu geta geymst vel og þroskast ef rétt er farið að þeim. Guy tryggir þetta m.a. með því að setja gæðastaðalinn ennþá hærra en lög og reglur gera ráð fyrir og uppsker aðeins um 30 hektólítra per hektara sem er næstum helmingi minna en er leyfilegt á svæðinu. Hann fer líka sínar eigin leiðir og gerir ekki alltaf sömu vínin á hverju ári heldur skiptir inn og út eða býr til ný.


View Vínframleiðendur í Frakklandi in a larger map


Rauðvín

Carignan, Cinsault, Grenache og Syrah, 2.390 kr.

Syrah, Cinsault og Grenache, 2.790 kr.


Hvítvín

Roussanne og Viognier, 2.390 kr.


 


"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway