Dal Forno Romano
  • Svæði: Veneto
  • Eigandi: Romano Dal Forno
  • Stofnað: 1983
  • Framleiddar flöskur: 50.000
  • Hektarafjöldi: 25
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 100%

Kóngurinn í Valpolicella, er Romano Dal Forno jafnan kallaður til að lýsa stöðu hans og virðingu sem víngerðarmanns. Rauðvínin tvö sem hann framleiðir, Valpolicella og Amarone, eru að margra mati hápunktur víngerðar á svæðinu, svo einstök að erfitt er í raun að setja þau á bekk með öðrum slíkum vínum frá héraðinu. Þau eru í sérflokki.

Ekki furða þar sem lærimeistari hans var Quintarelli heitinn. Romano Dal Forno hefur síðan beitt sér fyrir betrumbótum á ýmsum stigum víngerðarinnar og er enn að. Eða eins og einn framleiðandinn á svæðinu sagði: "Á meðan við hinir leyfum okkur að skreppa í golf síðdegis er Romano heima. Hann vinnur alla daga. Hann þekkir ekki bara allar þrúgur sínar heldur hvert einasta ber."

Ný víngerð hefur nú risið í kringum framleiðsluna og hektarar frá tengdasyni og frænda hafa bæst við svo framleiðslugetan er meiri en áður, krafan á gæði er óbreytt. Nútímaleg hugsun, tækni og framsýni sameinast þar virðingu fyrir möguleikum og duttlungum náttúrunnar.

 


View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map


Rauðvín

Corvinone, Rondinella, Croatina og Oselata, 21.000 kr.

Corvinone, Rondinella og Croatina, 7.990 kr.


Sætvín

Corvina, Rondinella, Croatina og Oseletta, 13.500 kr.



Wine Spectator fjallar lofsamlega um Dal Forno Romano í þessu vídeósmakki
 


Once ... in the wilds of Afghanistan, I lost my corkscrew, and we were forced to live on nothing but food and water for days.

W. C. Field