Domaine Christian Moreau
  • Svæði: Chablis í Búrgúnd
  • Eigandi: Christian Moreau
  • Víngerðarmaðuri: Fabien Moreau
  • Stofnað: 2002, með rætur til 1814
  • Framleiddar flöskur: 100.000
  • Hektarafjöldi: 12
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu:100%
  • Vefur: www.domainechristianmoreau.com

Þegar ég spurði Moreau feðga, Christian og Fabien, hvort þeir framleiddu ekki venjulegt Chablis sem ég gæti pantað, svokallað Village Chablis, var svarið á þann veg að vissulega byggju þeir það til en það væri í algjöran minnihluta samt. Á þessum bæ eru nefnilega nánast eingöngu framleidd Chablis vín af 1er og Grand Cru kyni og aðeins pínulítið af grunn-Chablis, Village. Þeir gætu svo sem framleitt og selt venjulegt Chablis í bílförum þar sem eftirspurnin eftir vínum þeirra er mikil en þeir kjósa frekar að halda framleiðslunni í litlu magni og það þýðir að fjöldaframleitt Chablis vín er alls ekki á kortinu. Til samanburðar eru aðeins 103 hektarar af Grand Cru sem hefur staðið í stað undanfarna áratugi en hátt í 4.000 af Chablis og Petit Chablis sem hefur aftur á móti fjórfaldast á tveimur áratugum.

Þessi afstaða Moreau feðganna útskýrir hvers vegna við bjóðum eingöngu upp á 1er Cru og Grand vín frá framleiðandanum.

Saga Moreau fjölskyldunnar í Chablis er löng. Hún hefst árið 1814 þegar Jean Joseph Moreau stofnað J. Moreau et Fils. Síðustu ár 20. aldarinnar var fyrirtækið hins vegar selt þar til árið 2002 þegar að Christian Moreau tók fjölskylduvínekrurnar aftur í sínar hendur og framleiðir nú vínin undir sínu eigin nafni. 

Vínekrur eru hins vegar ekki allt. Sonurinn Fabien er sá sem heldur um víngerðina í dag og stýrir af kunnáttu og miklum metnaði.

Það er til marks um hið góða starf feðganna að á aðeins fáeinum árum hefur Domaine Christian Moreau Pere et Fils, eins og það heitir fullu nafni, komið sér á stall meðal metnaðarfyllstu vínframleiðanda í Chablis.

 


View Vínframleiðendur í Frakklandi in a larger map

Hvítvín 

Chardonnay, 3.890 kr.


Chardonnay, 4.590 kr.

Chardonnay, 3.480 kr.


Hér má skoða sjónvarp frá heimsókn okkar til vínframleiðenda í Frakklandi haustið 2008 (Christian Moreau byrjar 7:58).

ALL TIME TOP 10 BURGUNDY DOMAINES "A new domaine in Chablis taking on half of the family vineyards in 2002" - Clive Coates
 


"I think it is a great error to consider a heavy tax on wines as a tax on luxury. On the contrary, it is a tax on the health of our citizens."
- Thomas Jefferson