Domaine Tempier
  • Svæði: Bandol í Provence (S-Frakkland)
  • Eigandi: Peyraud fjölskyldan
  • Stofnað: 1834
  • Heildarframleiðsla: 120.000 flöskur
  • Hektarafjöldi: 30
  • Vefur: www.domainetempier.com

Bandol er þorp á frönsku rívíerunni sem er ekki bara þekkt fyrir að hafa hýst fræga sóldýrkendur eins og Thomas Mann og Aldous Huxley heldur er þar líka handfylli af framleiðendum sem kunna að gera góð vín sem kennd eru við þorpið.  Nokkrir þeirra eru mjög góðir en það er bara pláss fyrir einn kóng og í Bandol er kóngurinn Domaine Tempier

Gæðastaðlar í Bandol eru háir: þar er bannað að vökva, bannað að bæta sykri í vín til að hækka áfengismagnið (leyfilegt í t.d. Búrgúndí), bannað að nota vélar við týnslu þrúga, þéttleiki planta má ekki vera undir 5000 plöntum per hektara og uppskera má aldrei fara yfir 40hl. per hektara sem jafngildir einni flösku per plöntu hámark. Tempier keppist við að hafa framleiðslu sína sem náttúrulegasta, t.d. er enginn ónáttúrulegur áburður notaður.  Hjá Tempier eru berin varlega losuð af klösunum áður en þau eru pressuð svo vínið fái ekki hörð tannín úr stilknum heldur einungis úr hýði og steinum bersins og safinn síðan þroskaður á hefðbundin hátt í stórum, gömlum eikartunnum frekar en litlum barrique svo eikaráhrifin verði ekki yfirgnæfandi.  Snauður jarðvegurinn er upplagður til vínræktar.

Tempier er ekki bara virtasti framleiðandinn í Bandol í dag, hann var það líka alla síðustu öld.  Domain Tempier var stofnað af Tempier fjölskyldunni 1834 á svæði þar sem vín hefur verið ræktað frá því 500 fyrir Krist — talandi um að læra af reynslunni.  Árið 1936 giftist Lucien Peyraud henni Lucie Tempier og síðan hefur fjölskyldan heitið Peyraud.  Lucien var frumkvöðull í Bandol og fræg persóna í franskri vínsögu, það var hans vínum og drifi að þakka að Bandol varð viðurkennt í hóp betri vínræktarsvæða Frakklands

 


View Vínframleiðendur í Frakklandi in a larger map

Rauðvín


Rósavín



  "Bandol fully deserves its reputation as the leading red wine of Provence ... Domaine Tempier has remained the benchmark."  - Rosemary George (The Wines of the South of France)

"I think it is a great error to consider a heavy tax on wines as a tax on luxury. On the contrary, it is a tax on the health of our citizens."
- Thomas Jefferson