Bræðurnir Riccardo og Renzo Cotarella er áhrifamiklir í ítalskri vínmenningu. Renzo er yfirmaður víngerðar hjá Antinori en Riccardo er einn þekktasti og áhrifamesti vínráðgjafi Ítalíu. Sameinaðir eiga þeir Falesco víngerðina.
Falesco kynntist ég fyrst í vínsmakki í Bandaríkunum árið 1999, m.a. Vitiano, og varð mjög hrifinn af gæðum og verði. Góð kaup eru aðalsmerki Falesco hvort sem um ræðir ódýrari eða dýrari vín fyrirtækisins. Þetta hefur verið staðfest með afskaplega góðum dómum í vínpressunni um víða veröld, m.a. á Ítalíu, Bandaríkjun og nú síðast Íslandi.
Falesco á vínekrur bæði í Umbria og 30 km. sunnar í Lazio. Skrifstofur og víngerðin hafa hingað til verið í Lazio en nú hefur glæsileg og fullkomin aðstaða verið reist á landareign Falesco í Umbria. Janvel þótt vínekrur verði áfram í Lazio slær hjartað í Umbria.
Nýja víngerðin er tæknilega fullkomin og Sidercama gerjunartankarnir hannaðir í samvinnu við Riccardo með það í huga að auðvelt sé að stjórna af mikilli nákvæmni hverju skrefi. Á landareigninni eru líka um 150 tegundir af tilraunaþrúgum þar sem fyrirtækið getur rannsakað kosti og eiginleika ólíkra þrúgna og þátta framleiðslunnar.
View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map