Mas de Perry
  • Svæði: Languedoc
  • Eigandi: Nicot fjölskyldan
  • Stofnað: 17. öld
  • Framleiddar flöskur: 67.000
  • Hektarafjöldi: 15 af vínviði
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 100%
  • Vefsíða: www.masdeperry.com

Það var á lestarstöðinni í Montpellier sem ég rakst á Britt Karlsson og mann hennar Per sem voru eins og ég á leiðinni á Languedoc vínsýninguna. Þau eru vínspekúlantar frá Svíþjóð sem skrifa í tímarit þar í landi, halda uppi vefsíðu og bloggi, skipuleggja vínferðir o.fl. Við ræddum um hvaða framleiðendur í Languedoc væru spennandi og bentu þau mér á Mas de Perry og sögðu hann vera lítinn gæðaframleiðanda með vín á góðu verði. Mas de Perry var ekki í neinum af mínum kokkabókum en þar sem mér leist svo vel á hjónin sænsku tók ég þessi góðu meðmæli og kom við á básnum hjá Mas de Perry. Og — voilà! — vínin þeirra enduðu á litlu eldfjallaeyjunni.

Landareignin er búin að vera í eigu sömu fjölskyldu, Nicot fjölskyldunnar, frá því á 17. öld. 1980 tók Genevieve Ponson Nicot við eigninni og hóf nútímalega víngerð og árið 2000 tóku börnin hennar Stéphanie og Olivier yfir.

Þegar ég hitti Stéphanie á vínsýningunni sló það mig hvað hún var sympatísk og blátt áfram og fannst mér karakter hennar einhvern vegin endurspeglast í vínunum. Þetta eru ekki ávaxtabombur heldur fínleg vín sem heilla með sérstaklega heillandi ilm. Metnaðurinn og virðingin fyrir afurðinni birtist m.a. í náttúruvænum framleiðsluaðferðum og þeirra staðreynd að uppskeru hverrar plöntu er haldið í algjöru lágmarki, ekki síst ef tekið er tillit til þess á hversu góðu verði vínin eru.

Svona mættu enn fleiri vínframleiðendur vera.



Rauðvín


Rósavín


Hvítvín



"Því miður er almenn vínmenníng hérlendis á því ómenníngarstigi, að fyrir þá sök eina er ekki með sanngirni hægt að telja íslendinga meðal siðaðri þjóða einsog er."

- Halldór Laxness