Michel Guignier
  • Svæði: Búrgúnd
  • Eigandi: Michel Guignier
  • Stofnað: 1989
  • Framleiddar flöskur: 40.000
  • Hektarafjöldi: 11
  • Hlutfall eigin þrúga af framleiðslu: 100%
  • Vefur: www.morgon-michel-guignier.com

guignier_vingerdBeaujolais er eitt af þessum vínum sem hafa lengi verið í sigtinu hjá okkur. Ekki endilega hið svokallaða Beujolais Nouveau heldur frekar þorpsvínin.

Þorpsvínin eru hin raunverulegu "cru" Beaujolais svæðisins. Til þess að fá að kenna sig við þorp eins og Morgon og Brouilly er ekki nóg að leigja box á pósthúsi miðbæjarins heldur þurfa vínin að vera af bestu vínekrunum í kringum viðkomandi bæ.

Þessi "cru" þorp eru nokkur (ekki öll þorp í Beaujolais fá "cru" status) t.d. Fleurie, Chiroubles, Morgon og Brouilly og höfum við flutt inn vín frá tveimur hinum síðastnefndu.

Það sem gerir þessa rauðvínsdeild sérstaklega áhugaverða er að hún hýsir hóp vínerðarmanna sem hafa verið að endurskoða og endurvekja hefðbundnar framleiðsluaðferðir með lífeflda (bíódýnamíska) og lífræna víngerð að leiðarljósi.

Þetta eru náttúruverndarsinnar vínheimsins.

Michel Guignier er einn þeirra.

Það hefur enginn prófað Beaujolais fyrr en hann hefur smakkað þorpsvín vegna þess að þau eru mun betri en hressingsdrykkurinn sem kennir sig við "nouveau". Þau eru flóknari, dýpri, þéttari og sterkbyggðari. Þau eru meira alvöru.

Þau deila þó með sér léttleikanum og aðgengilegheitunum. Öll Beaujolais eiga það sameiginlegt að vilja láta drekka sig.

Það er því ekki furða að Beaujolais eru með vinsælli Bistro-vínum Parísarborgar þar sem þeim er skolað niður með hraustlegum máltíðum.


Rauðvín

Gamay, 2.980 kr.

Gamay, 3.490 kr.


 


"Því miður er almenn vínmenníng hérlendis á því ómenníngarstigi, að fyrir þá sök eina er ekki með sanngirni hægt að telja íslendinga meðal siðaðri þjóða einsog er."

- Halldór Laxness