Súkkulaði

AMEDEI

Súkkulaði frá Amedei í Toskana á Ítalíu fæst í Ostabúðinni á Skólavörðustíg, Sandholt bakaríi og í Kokku á Laugaveginum. Stærri pantanir má gera beint hjá okkur auk þess sem við bjóðum upp á sérstaka Amedei Smakkpakka. Amedei er leiðandi í súkkulaðigerð og margverðlaunað. Við bendum á að dökkt súkkulaði í hófi er gott fyrir sálina, hjartað og kynlífið.

 

Hunang

APICOLTURA RINALDI

Býflugurnar sem búa til hunang Rinaldi fjölskyldunnar suða inni á landareign vínframleiðandans Luciano Sandrone. Við kippum því alltaf nokkrum dollum af hunangi með hverri pöntun af safaríkum Sandrone rauðvínum. Tvær tegundir af Rinaldi hunangi fást í Fylgifiskum á Suðurlandsbraut, Miele Delle Langhe sem er yndislegt og aðgengilegt og Miele Dell'alta Val Tanaro sem er gríðarlega kröftugt og sveitalegt. Bæði eru lífræn. Sérstakar þakkir fá býflugurnar í Bussia fyrir að búa til þetta hunang.

Ólífuolía

RIETINE og FONTODI

Fáir gera betri ólífuolíur en Ítalir. Toskana er framarlega á því sviði eins og í víngerðinni. Báðar ólífuolíurnar okkar koma þaðan og eru þær framleiddar af vínframleiðendum eins og oft tíðkast með betri ólífuolíur.  Olio Extra Vergine d'Oliva frá Arnaldo Caprai fæst í Kokku á Laugaveginum en Fontodi Olio Extra Vergine d'Oliva DOP Chianti Classico fæst í Fylgifiskum á Suðurlandsbraut. Þær eru báðar lífrænar og því 100% náttúruleg afurð án nokkurra viðbættra efna.


"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."