27. desember 2010 | 14:14
| Arnar

Góð kaup, mjög góð kaup, frábær kaup og eitt hrikalega flott á Vínótekinu

ca_rugate_rio_albo_minniSteingrímur Sigurgeirsson hefur farið hamförum á vefsíðu sinni Vínótek frá því hún opnaði og skrifað hvern pistilinn á fætur öðrum: víndóma, girnilegar uppskriftir og ýmsan góðan fróðleik.

Bloggarinn laumaði til hans blandi í poka af nýjustu vínunum í haust og fyrstu dómarnir hafa fallið.

Þetta eru fjögur vín frá tveimur framleiðendum, ítalska Ca Rugate og franska Domaine Combe Blanche og þótt við séum ekki alveg alltaf sammála er eins og Steingrímur hafi lesið hugsanir okkar hvað karakter þessara fjögurra vína varðar.

San Michele Soave 2009 frá Ca Rugate fær 4 stjörnur af fimm mögulegum (lesa allan dóminn) og fína lýsingu eins og "virkilega gott matarvín" og "mjög góð kaup".

Rauðvínin tvö frá Ca Rugate fá enn betri dóma því bæði slaga í 4 og 1/2 stjörnur af fimm. Valpolicella Ripasso 2008 kallar Steingrímur "hrikalega flott" (lesa allan dóminn) og Rio Alba Valpolicella 2009 kallar hann hreinlega "frábær kaup" (lesa allan dóminn).

Calamiac Terroir Roussanne Viognier 2007 frá Combe Blanche fær síðan 4 stjörnur (lesa allan dóminn) með ummælum eins og "karaktermikið og heillandi".

Allt voða jákvætt og skemmtilegt.

Fleiri dómar frá Steingrími verða birtir hér á blogginu þegar þeir koma í hús.

Til baka


"Rejecting a wine because it is not big enough is like rejecting a book because it is not long enough, or a piece of music because it is not loud enough."
- Kermit Lynch