Lífrænu vínin frá Valdibella frá Sikiley fá fallega umfjöllun í Gestgjafanum.
Rósavínið Dhyana og rauðvínið Jaki fá fjögur glös af fimm og nafnbótina VÍN MÁNAÐARINS. Hvítvínið Ariddu fær þrjú og hálft glas.
Í stuttu máli er það hreinleiki vínanna m.a. sem fangar vínsmakkara tímaritsins.
Hrein, vegna þess að þau endurspegla af einlægni uppruna sinn, Sikiley, og þrúgurnar sem í þau fara svo vel. M.ö.o. eru ekki andlaus iðnaðarvín.
Hrein, vegna þess að þau eru framleidd af virðingu fyrir náttúrunni og laus við ónáttúrlega ofurmeðhöndlun úti á vínekru sem inni í víngerð.