Montevetrano
  • Svæði: Campania
  • Eigandi: Silvia Imparato
  • Ráðgjafi: Riccardo Cotarella
  • Stofnað: 1994
  • Framleiddar flöskur: 26.000
  • Hektarafjöldi:
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 100%
  • Vefur: www.montevetrano.it

1985 hittust fimm vinir sem allir voru miklir vínástríðumenn, Cotarellabræðurnir voru meðal helstu vínráðgjafa Ítalíu, Luca Maroni var einn helsti víngagnrýnandi Ítalíu, Clara átti þekkta vínbúð í Róm og síðan var það Silvia Imparato sem starfaði sem ljósmyndari. Tilgangurinn var að búa til vín með Bordeaux sem fyrirmynd.

Ákveðið var að kaupa landspildu á S-Ítalíu, í Campaniu héraði og rækta þar Bordeaux þrúgurnar Cabernet Sauvignon og Merlot ásamt svolitlu af staðbundnu þrúgunni Aglianico. Fyrsta uppskeran árið 1991 var ein tunna. Gæðin voru slík að Montevetrano varð nánast frægt á einni nóttu og æ síðan.

Í dag er fyrirtækið alfarið í eigu Silvíu Imparato en Riccardo Coterella er ennþá ráðgjafi þess. Þar framleiðir hún líka ýmis konar mauk úr ávöxtum og grænmeti sem eru svo góð að það hálfa væri nóg.

 


View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map

Rauðvín

Cabernet Sauvignon, Merlot og Aglianico, 5.900 kr. 




 


"Rejecting a wine because it is not big enough is like rejecting a book because it is not long enough, or a piece of music because it is not loud enough."
- Kermit Lynch