Það er eitthvað við góð Ripasso vín sem er lokkandi. Fremur háu áfengismagni (14%) er mætt með þykkum og svolítið sultukenndum ávexti. Töluvert stærra um sig og ágengara en hið "venjulega" Valpolicella en ekki eins sláandi og hið stórkarlalega Amarone. Framleiðsluaðferðin er þannig að sætþroskuð vínber sem áður hafa verið pressuð til að framleiða Amarone eru endurgerjuð ("ripasso") í venjulegu Valpolicella rauðvíni og þannig næst fram þessi millikarakter, mitt á milli Valpolicella og Amarone. Þetta rauðvín er síðan látið þroskast í 8 mánuði í stórum eikartunnum til hálfs við stáltanka. Flauelsmjúkt, ferskt og höfugt vín sem er frábært með grilluðu kjöti og kjötsósupasta eða hörðum ostum. Nú þegar Amarone vín eru svo dýr þurfa allir á góðu Ripasso að halda.
4 1/2 stjarna "Hrikalega flott" Vínótek
VÍN MÁNAÐARINS Gestgjafinn.
Ca Rugate
Tessari fjölskyldan framleiðir frískleg Soave hvítvín og Valpolicella rauðvín í hjarta Veneto héraðsins.
Rauðvín
Hvítvín