Í Castello di Querceto er dæmigerður Toscana-kastali; fremur smár, ljósgrábrúnn á lit, með einum varðturni/klukkuturni og nokkrum samföstum smáhýsum, umvafinn síprustrjám, ólífulundum og vínekrum… en heitir samt í höfuðið á eikartrjánum sem vaxa þar einnig “Kastali eikarskógarins”. François-hjónin, Alessandro og Antonietta, búa í kastalanum, börnin þrjú eru flutt að heiman þótt þau vinni öll við víngerðina.
Ég hafði einu sinni fyrir nokkrum árum komið við í þessum kastala sem venjulegur víntúristi og hefði þá átt erfitt að ímynda mér að ég kæmi þangað aftur sem viðskiptavinur. “Vinur” er rétta orðið því Alessandro og Antonietta er ótrúlega gestrisin og vinalegt fólk.
Alessandro er að gera ótrúlega hluti. Chianti vínin eru öll góð kaup en það voru einnarekruvínin sem hrifu mig upp úr skónum og af þeim gerir Alessandro nóg. Einhvern gagnrýndi hann fyrir að framleiða of mörg slík vín sem væri ruglingslegt og ófókuserað enda ekki dæmigert fyrir héraðið en í raun er það ástríða en ekki óreiða sem veldur því að þau eru svo mörg, Alessandro getur nefnilega ekki stillt stig um að leyfa sérhverri vínekru að njóta sín í flösku af víni út af fyrir sig. Það má kalla það að víngerðarmaðurinn “komi til dyrann eins og hann er klæddur” því einnarekruvínin sýna alla eiginleika viðkomandi vínekru frekar en hylja suma með blöndun við aðrar ekrur.
Kastalinn er 25 kílómetra suður af Flórens, nokkra kílómetra frá bænum Greve í 470m. hæð yfir sjávarmáli. Þetta eru kjöraðstæður og Alessandro reynir að fullnýta hvern möguleika til að hámarka gæði framleiðslunnar. Þótt framleiðslan telji í dag orðið milljón flöskur eru allar þrúgur handtýndar. Uppskeran er ekki nema um 45hl. per hektara fyrir Chianti Classico vínin og niður í 35hl. fyrir einnarekruvínin. Viðmiðunin er að hver planta gefi af sér að meðaltali eina flösku.
Framtíðin er björt; börnin eru ung og áhugasöm, stöðug endurnýjun og betrumbætur á vínvið eiga sér stað, vínekrum fjölgar og glæsilegri aðstöðu fyrir framleiðsluna er nýlokið. Alessandro er þó maður sem stoppar aldrei og er með endalaus áform um að gera enn betur.
Karakter hjónanna endurspeglast í vínunum; glæsileg blanda af alþjóðlegri framkomu og sveitalegum þokka, aðgengileg en flókin, bragðmikil en silkimjúk, fáguð og í einstaklega góðu jafnvægi - framleidd af metnaði, virðingu og ástríðu.
View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map

Rauðvín
Hvítvín
Freyðivín
Sætvín
Sterkt áfengi