Dæmigerð Rónarblanda úr fjórum ólíkum þrúgum. Vínið gerjast og þroskast í tönkum og kemst aldrei í snertingu við eikartunnur svo ferskleiki og tærleiki viðhaldist sem best. Í nefi finnst mikil berjasinfónía með léttkrydduðu eftirbragði. Vínið er allt mjög létt á fæti og þykir afskaplega vænt um mat eins og allavegana dökkt og ljóst kjöt. Prófa endilega með barbeque-inu.
Vín mánaðarins - 4 glös "ferskt með fínlegan kraft" Gestgjafinn. (lestu meira)
Chateau de Montfaucon
Hátt hlutfall af gömlum vínvið og lífræn ræktun m.a. skilar framúrskarandi Rónarvínum frá Montfaucon undir handleiðslu Rodolphe de Pins. Samkvæmt hefðinni eru flest vínin blönduð af all mörgum mismunandi þrúgnategundum og einkennast af heillandi ferskleika og fágun.
Rauðvín
Hvítvín