Chablis Grand Cru Les Clos "Hospices Les Clos"
Appellation Chablis Grand Cru Les Clos Contrôlée
  • árgangur: 2004
  • þrúga: Chardonnay
  • svæði: Búrgúnd
  • verð: 5.600 kr.
  • fæst með sérpöntun

Grand Cru vínekrurnar í Chablis eru tilkomumikili sjón. Þær eru alveg ofan í bænum og mynda eina samfellda hlíð. Þar á meðal er Les Clos vínekran sem þetta vín kemur frá. Nánar tiltekið kemur vínið frá litlum skika innan Les Clos vínekrunnar sem Moreau fjölskhyldan á í heild sinni, það sem frakkar kalla Monopole. Sá skiki er kallaður Hospices Les Clos og er vínið sem þaðan kemur fágætasta vínið í línu framleiðandans. Aldur vínviðar er um 30 ár. Vínið fer í eikartunnur í 4 mánuði svo það vottar fyrir eik þótt hún sé væg, 10% eikartunna eru nýjar og restin 1-3 ára gamlar tunnur. Þetta er breiðasta og feitasta vín framleiðendans en skortir samt ekki hina dæmigerðu Chablis snerpu. Afskaplega ljúft, opið og safaríkt vín sem gengur sérstaklega vel með t.d. feitari fiski eins og humri.

Til baka

Domaine Christian Moreau
Feðgarnir Christian og Fabien Moreau endurheimtu fjölskylduvínekrurnar árið 2002 og hafa á fáeinum árum komið sér á stall meðal metnaðarfyllstu framleiðenda á svæðinu. Þeir framleiða aðallega 1er og Grand Cru Chablis. 
 

Meira um framleiðandann

 



Hvítvín

Chardonnay, 3.890 kr.


Chardonnay, 4.590 kr.

Chardonnay, 3.480 kr.



"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway