Af mörgum talið eitt besta Merlot Ítalíu. Látið er þroskast 12 mánuði í nýjum, frönskum Never og Troncais barrique eikartunnum. Dökk og þykkt vín, kröftugt með góðum, en ekki of, eikar- og vanillutónum. Við mælum með því að opna þetta vín eða umhella með góðum fyrirvara - höfum skilið hálfa flösku eftir (með tappanum í) í sólarhring og vínið var einfaldlega orðið betra… það var flóknara, opnara og fágaðra. Um 40.000 flöskur framleiddar. 2005 árgangur var mjög góður og er farinn að sýna góðan þroska.
50 vín sem hafa breytt Ítalíu Gambero Rosso. Lestu dóminn
Falesco
Ofurvíngerðarbræðurnir Renzo, yfirmaður víngerðar hjá Antinori, og Riccardo Cotarella, einn áhrifamesti vínráðgjafi Ítalíu, sameina krafta sína í þessari víngerð sem hlotið hefur nánast lygilega góða dóma í ítölsku, amerísku og íslensku pressunni, ekki síst fyrir hin frábæru kaup Vitiano og fyrir Montiano, eitt best Merlot Ítalíu.
Rauðvín
Hvítvín
Sætvín