Grecante
Grechetto dei Colli Martani D.O.C.
  • árgangur: 2006
  • þrúga: Grechetto
  • svæði: Úmbría
  • verð: 2.590 kr.
  • fæst í Kringlunni, Heiðrúnu, Skútuvogi, Eiðistorgi, Borgartúni, Smáralind, Akureyri og á Holtinu

Caprai fjölskyldan framleiðir tvö hvítvín og er þetta hið dýra. Ilmurinn er afskaplega ferskur og lokkandi, perubrjóstsykur og sítrúskeimur í bland við hvít blóm með daufum sætuvotti af þroskuðum ferskjum. Í munni er það svo lifandi að maður lifnar við og vill fá að borða. Góð fylling, þétt og lifir lengi með áberandi pipareftirbragði. Þar sem þetta er allþétt vín, þótt óeikað sé, þá getur það vel tekist á við bragðmeiri fiskrétti og ljóst kjöt auk þess sem ég sé fyrir mér að ýmis konar grænmetisréttir njóti sín vel með þessu víni.

Hvað segja bloggarar um þetta vín?

Þórdís bloggar um Grecante

91 stig "Tilvalið með flestu" Mbl. Lestu dóminn

[2005]
91 stig "einstaklega fágað og fókuserað" Mbl. Lestu dóminn

4 glös "Gimsteinn frá Ítalíu" Gestgjafinn. Lestu dóminn

Til baka

Firriato
Hjá Firriato er sikileyskur krafturinn haminn og taminn með alþjóðlegu hugarfari og nútímalegum framleiðsluaðferðum. Þessi frekar stóri framleiðandi er rómaður fyrir sín góðu kaup og hefur margsinnis hlotið hin eftirsóttu Tre Bicchieri í ítölsku pressunni fyrir að gera ein bestu vín eyjarinnar.


Meira um framleiðandann

 



Rauðvín


Hvítvín



"I think it is a great error to consider a heavy tax on wines as a tax on luxury. On the contrary, it is a tax on the health of our citizens."
- Thomas Jefferson