Framleitt úr hinni sjaldgæfu Teroldego þrúgu og látið þroskast 12 mánuði í litlum eikartunnum (70% nýjar). Vínið er eins og sveitaprinsessa, fáguð og vel upp alin en jafnframt þokkafull og heillandi af náttúrunnar hendi. Tannín eru afar mild, ávöxtur er þroskaður og hefur sætu er minnir á lavander (lognarblóm) og svo er það... já, appelsínubörkurinn sem gefur þrúgunni þessi sérstöku en ómótstæðilegu einkenni. Elisabetta vill nú reyndar meina að þetta sé pomegranate, þ.e. granatepli, sem hefur sýru er minnir svolítið á appelsínu. Talsverður árgangsmunur er á þessu víni; t.d. var 2003 heitara ár heldur en 2002 sem var blautt og kalt og 2003 því þroskaðra, dýpra og með ekki eins ýkt sérkenni og 2002.
Foradori
Elisabetta Foradori stýrir fyrirtækinu og vínræktinni ásamt því að vera einstæð fjögurra barna móðir. Vínin eru einstök og orðsporið eitt það besta í Trentino héraði, jafnvel allri Ítalíu.
Rauðvín