Sú var tíðin að La Spinetta sérhæfði sig eingöngu í einnarekru Moscato d'Asti vínum. Þótt þau hafi aðeins fallið í skuggann af stóru og frægu rauðvínum framleiðandans sem síðan hafa bæst við er þau tvö sem eftir eru ennþá stór hluti framleiðslunnar. Bricco Quaglia er þannig um 20% af heildarframleiðslu La Spinetta. Eins og önnur vín framleiðandans er þetta Moscato d'Asti leiðandi vín fyrir þennan tiltekna flokk. Það hefur áberandi Macintosh epli í nefi ásamt rabarbara, hvítri ferskju, bleikum liljum og rósum, blæjuberjum og að sjálfsögðu Moscato þrúgunni sjálfri sem er svo karaktermikil. Vínið er léttfreyðandi (lestu á blogginu hvernig vínið er búið til), einungis 4.5% og því vel sætt en nægilega sýruríkt svo það verði ekki of væmið. Kryddað eftirbragð með vott af banana. Hentugt sem fordrykkur, með eftiréttum eða eitt og sér. Prófaðu líka ískalt með indverskum mat.
Lestu meira um þetta vín á vefsíðu framleiðandans
[2005]
4 glös BESTU KAUPIN / SUMARVÍN "jafnvel kynæsandi" Gestgjafinn. Lestu dóminn
17/20 "Perfúmerað með nokkurri sætu" Mbl. Lestu dóminn
[2004]
B-in þrjú, Barbaresco, Barbera og Barolo frá La Spinetta eru einhver eftirsóttustu vín sinnar tegundar enda fágæt, flott og nútímaleg. Einnarekru Moscato d’Asti er sætt, freyðandi og ómótstæðilegt.
Rauðvín
Hvítvín