Dolce þýðir á íslensku “sætt” en þetta vín er langt frá því. Dolcetto vín hafa í gegnum tíðina verið framleidd til þess að vera létt, aðgengileg og auðdrekkanleg og stundum borin saman við Beaujolais. Dolcetto þrúgan hefur reyndar þykk skinn og er því hægt að búa til vín úr henni sem hafa góð tannín og það hefur Sandrone gert. Það er því gleði og alvara sem sameinast í þessu víni sem er látið þroskast í stáltönkum til þess að viðhalda hámarks ferskleika skv. hefðinni. Þetta er hátónað vín og sýruríkt, fyrirtak með kjarnríkum mat. Eins og önnur vín frá Luciano Sandrone er Dolcetto-ið hans talið meðal þeirra bestu í þeim flokki.
[2004]
4 stjörnur "Pristine varietal character" Decanter. Lestu dóminn
[2003]
4 glös VÍN MÁNAÐARINS "framúrskarandi vín" Gestgjafinn. Lestu dóminn
17/20 "dökkt og mikið vín" Mbl. Lestu dóminn
Luciano Sandrone
Luciano sjálfur er stjórinn, bróðirinn Luca vinnur erfiðisvinnuna og dóttirin Barbara sinnir markaðsmálunum. Frá einhverjum bestu vínekrum Piemonte framleiða þau saman glæsileg og eftirsótt rauðvín.
Meira um framleiðandann
Rauðvín