Le Vigne þýðir “vínekrurnar” og vísar til þess að vínið er samsett úr þrúgum frá ólíkum vínekrum, 5 blettir frá 4 ólíkum vínekrum. Þrúgur frá hverri vínekru fyrir sig eru gerjaðar og þroskaðar í 24 mánuði í nýjum, óristuðum, frönskum 5-600l. eikartunnum áður en þeim er blandað saman í ákveðnum hlutföllum og vínið sett á flöskur þar sem það er geymt í 1.5 ár áður en það er sett á markað. Þetta vín hefur magnaðan ilmprófíl og er einstaklega kvenlegt og fínlegt á yfirborðinu, stutt af djúpum ávexti og kröftugu tannín. Ólíkir eiginleikar vínekranna gera vínið flókið. Það þarf 3-4 ár til viðbótar í flösku til þess að byrja að sýna hvað í því býr en getur þroskast og geymst mun lengur. 2003 var heitt í ári og vínið þykkara og dekkra en vanalega en 2004 er einn sá besti hingað til með meiri fínleika og getur geymst í ár og áratugi.
[2004]
96 stig Robert Parker
[2001]
5 stjörnur DECANTER WINES OF THE YEAR "Great depth of flavour" Decanter. Lestu dóminn
Luciano Sandrone
Luciano sjálfur er stjórinn, bróðirinn Luca vinnur erfiðisvinnuna og dóttirin Barbara sinnir markaðsmálunum. Frá einhverjum bestu vínekrum Piemonte framleiða þau saman glæsileg og eftirsótt rauðvín.
Meira um framleiðandann
Rauðvín