Les Baux de Provence Cuvee Tradition
A.C. Les Baux de Provence
  • árgangur: 2006
  • þrúgur: Syrah (29%), Grenache (22%), Cabernet Sauvignon (18%), Mourvèdre, (10%), Carignane (11%) og Cinsault (10%).
  • svæði: Provence
  • verð: 2.889 kr.
  • fæst í Heiðrúnu, Kringlunni, Borgartúni og Skútuvogi

Við kynntumst fyrst 1998 árganginum í Gordons vínbúðinni í Boston og kolféll fyrir því. Vínið er sérstakt Cuvee, framleitt fyrir bandarískan heildsala, en Vín og matur fékk að kaupa það líka þrátt fyrir að önnur útgáfa, sem ekki inniheldur Cabernet Sauvignon, sé ætluð Evrópumarkaði. Ef hægt er að upplifa heilt hérað í einu glasi af víni þá gerir Cuve Tradition nákvæmlega það fyrir Provence. Angar af ferskum kryddum, jörð, súkkulaði, kaffi og villtum berjum sem endurómar í fullkomnlega í munni. Aðeins 12.5 % og eitt “léttasta” vín okkar, gerir það svo aðgengilegt og gott með mat. Laukur, lamb, ólífur, basílika – hvar ertu? Lífrænt vín. Heillandi sveitadís.

4 1/2 glas VÍN MANAÐARINS "Yndislegt vín með mikinn karakter" Gestgjafinn. Lestu dóminn

[2003]
4 glös "margslungið vín" Gestgjafinn. Lestu dóminn

19/20 "með bestu kaupum í vínbúðunum í dag" Mbl. Lestu dóminn

4 glös "Þetta lífræna vín er vel þétt" Gestgjafinn. Lestu dóminn

Til baka

Mas de Gourgonnier  
Svæðið sem Mas de Gourgonnier er á er eitthvert það lífrænasta í veröldinni hvað víngerð snertir og er Mas de Gourgonnier þar engin undnantekning. Öll framleiðslan er lífræn, frá vínum til ólífuolíu.

Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Syrah, Grenache, Cabernet Sauvignon, Mourvédre, Carignane og Cinsault, 2.889 kr.


Hvítvín

Sauvignon Blanc, Grenache Blanc og Rolle, 2.889 kr.


Rósavín

Syrah, Grenache, Mourvédre, Carignane og Cinsault, 2.980 kr.



Once ... in the wilds of Afghanistan, I lost my corkscrew, and we were forced to live on nothing but food and water for days.

W. C. Field