Góð mýkt gerir þetta að aðgengilegu víni. Það er líka fjölhæft matarvín sem getur gengið með pizzum, pasta og hvers konar kjöti og pottréttum, ekki síst góðum grillmat. Það eru vín eins og þetta sem við leggjum mikið upp úr, alvöru vín með karakter á hóflegu verði.
Umani Ronchi
Í fyrstu var fyrirtækið eingöngu í eigu stofnandans Dr. Gino Umani Ronchi en stuttu síðar gerðist Eng. Bianchi meðeigandi og tók það síðan yfir 8. áratugnum. Tengdasonur Bianchis, Dr. Massimo Bernetti, rekur fyrirtækið í dag ásamt syni sínum Michele og gera þeir einhver bestu vín svæðisins.
Meira um framleiðandann
Rauðvín
Hvítvín