Póstlisti Vín og Matur ehf 5.8.2003
góðan daginn,
Hluti af því að vera vínunnandi er að lesa tímarit og bækur er fjalla um eða gagnrýna vín. Fyrir skömmu kynnti ég nokkra slíka miðla hér á póstlistanum. Fyrir víninnflytjanda er þetta ekki síður mikilvægt tæki. Rietine frá Chianti Classico (Toskana) las ég fyrst um í Wine Spectator. Hann vakti áhuga minn fyrst og fremst vegna þess að þarna virtist vera á ferðinni fremur lítið þekktur framleiðandi með ódýrt Chianti Classico sem var samt að fá betri einkunn en flest slík vín frá þekktari framleiðendum. Þetta var Chianti Classico 1999 og fékk það 89 stig af 100. Ekki síður fannst mér spennandi þau ummæli sem Súper-Toskana vínið þeirra Tiziano 1997 fékk:
"Solid, muscular wine. Fantastic aromas of crushed berries, minerals, cigar tobacco and wood. Full-bodied and chewy, with big, juicy tannins and a long, ripe, smoky aftertaste. One of Tuscany's sleepers, maybe one of Italy's. Best after 2005. 500 cases made." 94 stig af 100.
Tiziano er óvenjulegt því það er að hluta úr þrúgunni lambrusco sem er afar sjaldgæft fyrir þetta svæði. Annars er það að mestu leyti úr merlot. Vínið einkennist af bláberjaangan, dökkt og mikið með snörp tannín (þ.e. nokkuð stamt). Er enn ungt og þarfnast því umhellingar. Steikarvín !
Ég fann svo loks Rietine Chianti Classico 1999 ári síðar í Flórens, keypti, drakk og skrifaði eitt orð: "nammi ! ". Ég man hins vegar vel hvernig það smakkaðist. Þetta var mjúkt vín og djúpt með þægilegum ávexti og snert af súkkulaðisætleika. Vínið smellpassaði með villisvínapylsunni sem ég var að borða með. 2001 var annar góður árgangur á Ítalíu, vínið er sýruríkt með ferskum ávexti en sýnir góða mýkt með réttum mat (pasta og kjöt). Þetta vín ber ekki alþjóðlegan elegans heldur frekar ekta ítalskan sveitalegan þokka. Vínið á eftir að verða enn betra í flöskunni eftir nokkra mánuði og geymist í 4-5 ár.
Ég lét Steingrím Sigurgeirsson fá eintak og niðurstaðan birtist fyrir viku síðan í Sunnudagsmogganum. Hann var alveg sömu skoðunar og ég: "Annað einstaklega gott Chianti-vín er Rietine Chianti Classico 2001. Í nefi er mikill og sætur kirsuberjailmur, kryddað og nokkuð sveitalegt. Í munni hefur vínið góða sýru, fullt af ítalskri lífsgleði. Afbragðs matarvín. Klassískur Chianti svolítið í gamla stílnum eins og hann gerist bestur." 18/20 og BUDDU fyrir MJÖG GÓÐ KAUP.
Vínið var jafnframt eina vínið þetta skiptið sem fékk budduna góðu. Í sömu umfjöllun fékk vínið Isole e Olena 2000 (er til Reynslu hjá ÁTVR og fæst því í fleiri verslunum en Rietine) sömu einkunn 18/20 en enga buddu þrátt fyrir að kosta 40 krónum minna en Rietine.
Rietine 2001 hefur ekki verið gagnrýnt hjá Wine Spectator. Ef borinn er hins vegar árangur þess fyrir 1999 (89/100) og 2000 (87/100) við Chianti Classico af sömu árgöngum þeirra framleiðanda sem nú fást í ÁTVR, fær Rietine hæstu einkunn í báðum tilfellum (Fonterutoli og Querciabella 2000 fá líka 87/100 en kosta meira, 1780 og 2200, Olena 2000 fær 86)
2001 Rietine Chianti Classico D.O.C.G 1590 kr
1997 Rietine Tiziano V.D.T. 2990 kr
(sjá líka myndir í viðhengi)i
1997 var frábær árgangur í Toskana. Þetta er því gott tækifæri til að eignast vín frá þessum árgangi sem annars er erfitt þar sem nú fást aðallega yngri vín í ÁTVR. Einungis 35 flöskur eru fáanlegar af Tiziano 1997.
Vínin fást í Heiðrúnu og Kringlunni
njótið heil,
Arnar