Póstlisti Vín og Matur ehf 6.10.2003
 
Góðan daginn,
 
Í Morgunblaðinu í gær, 5.10.2003, birtust mjög jákvæðir dómar á sikileysku vínunum sem Vín og Matur flytur inn frá Firriato.  Fyrirsögnin er "Firriato - nútímalegur Sikileyingur" og stendur í greininni m.a.:
 
"Vínin frá Sikiley eru nútímaleg í alla staði og alþjóðleg í stílnum án þess þó að glata hinum sikileyska uppruna sínum, sem er mikill kostur."
 
Um hvítvínin tvö segir Steingrímur m.a.:
 
Alcamo Bianco 2002 "... Blóm og sítrus í nefi, blómin hvít og sítrusinn sætur lime-ávöxtur ... Afskaplega þokkafullt vín, lifandi og einfaldlega gott."  Einkunn 18/20. 1.290,- kr.
 
Santagostino Baglio Soria bianco 2002 "... Ferskur, titrandi ilmur, sítrus, kívi og kantalúpu-melónur í nefi.  Í munni hefur vínið gífurlega dýpt ... í bland við yndislegan ferskleika.  Þroskann úr sól Sikileyjar en jafnframt fínleika og elegans vína sem einungis kemur með frábærri víngerð.  Yndislegt í alla staði."  Einkunn 19/20.  1.790,- kr.
 
Um rauðvínin tvö segir Steingrímur m.a.:
 
Altavilla Della Corte rosso 2001 "... Sætur áfengur ilmur, dökkur ávöxtur, nýbakaðir kanilsnúðar, rúsínur og smjör ... Glæsileg uppbygging."  Einkunn 18/20.  1.590,- kr.
 
Santagostino Baglio Soria rosso 2001 "... er mikill kraftabolti ... Dökkt og mikið vín, ávöxturinn heitur, þroskaður og kryddaður.  Þarna eru plómur og þurrkaðir ávextir en einnig vottar fyrir leðri og vanillu.  Bragðsprengja en jafnframt fínlegt og flott."  Einkunn 18/20.  1.790,- kr.
 
Frá Firriato fást líka súper-rauðvínin Harmonium og Camelot.  Öll vínin fást í ÁTVR Kringlunni og Heiðrúnu.
 
 
Einnig skrifar Steingrímur um ólífuolíuna frá Rietine undir fyrirsögninni "Afbragðs olía" og segir m.a. "...það er eins og að finna gull að rekast á ólífuolíu í hæsta gæðaflokki... Olían er fallega græn, sæt og bragðmikil.  Þykk og mild.  Lúxusolía ...".  Ólífuolían fæst í Kokku við Laugaveg og kostar 1.850,- kr.  Hún er líka frumleg og falleg gjöf við ýmis tækifæri, matarboð ofl., í stað t.d. blóma.
 
 
bestu kveðjur,
Arnar
Til baka

Vínpósturinn

Eldri Vínpóstur

16. febrúar 2006

02. febrúar 2006

05. janúar 2006

21. desember 2005



16. september 2005



05. ágúst 2005


04. júlí 2005

04. júlí 2005








11. febrúar 2005

25. janúar 2005

10. janúar 2005

16. desember 2004

13. desember 2004

09. desember 2004



16. nóvember 2004

25. október 2004

22. október 2004

03. september 2004


13. ágúst 2004

03. ágúst 2004

28. júlí 2004





07. júní 2004

04. júní 2004


13. maí 2004

07. maí 2004



23. mars 2004

12. mars 2004



11. janúar 2004

26. desember 2003



01. desember 2003

27. nóvember 2003


06. október 2003

05. september 2003


05. ágúst 2003

01. ágúst 2003

24. júlí 2003

16. júlí 2003

10. júlí 2003

18. júní 2003

12. júní 2003

03. júní 2003

03. júní 2003



"It was with a delicious feeling of lightheadedness and supreme contentment that, in the late afternoon, I paid my bill, bid an affectionate farewell to M. Point, and went out into the garden."
- Joseph Wechsberg