Póstlisti Vín & Matur 13.4.2004
 
Góðan daginn,
 
Á sunnudaginn síðasta birtist afar góð gagnrýni á okkar vínum hjá Steingrími í Morgunblaðinu.   Steingrímur byrjar grein sína svo: "Það eru sem betur ekki bara fyrirsjáanleg Chardonnay- og Cabernet-vín sem bætast í hillurnar í vínbúðunum.  Alltaf leynast einhverjar perlur inn á mill...".  Þarna á hann við hvítvínin okkar frá hinum þýska Keller og rauðvínin frá hinum ítalska Falesco.
 
Af alls 6 vínum fá 3 hæstu einkunn þ.e. 20 stig af 20 mögulegum !.  Það er ótrúlegur árangur, ég man t.d. ekki eftir að nokkurt vín hafi yfirleitt fengið 20 stig það sem af er þessu ári, hvað þá 3 vín í sömu grein - ég held það hafi hreinlega aldrei gerst áður.
 
Hann hefur gagnrýnina með tveimur af ódýrari vínum Kellers og gefur þeim báðum 17/20.  Það finnst mér of lág einkunn, munurinn milli t.d. Spatlese og Spatlese 17 (með gyllta tappanum) er ekki svona mikill þótt hann sé vissuleg nokkur enda þúsund króna verðmunur á vínunum.  Wine Spectator (WS) gefur Spatlese t.d. 91 stig og Auslese 92 - en Steingrímum gefur þeim 17 annars vegar og 20 hins vegar jafnvel þótt verð sé líka hluti af jöfnunni, þ.e. lægra verð (betri kaup) = hærri einkunn.  Sjálfur hefði ég gefið Spatlese amk. 19 stig.
 
Nóg um það... hér er dýrðin:
 
Keller Riesling Rheinhessen Trocken "von der Fels" 2002, - 1.990 kr.
Mbl. 17/20 (WS 88)
"Hefur mildan og góðan ávöxt í nefi, sæt vínber, lime og kiwi, létt sýra í munni og örlítil sæta.  Mjög aðlaðandi vín og þægilegt."
 
Keller Dalsheimer Hubacker Riesling Spatlese 2002, - 1.890 kr.
Mbl. 17/20 (WS 91)
"Hefur sæta angan af þurrkuðum ávöxtum og sírópi, í munni springur bragðið út með töluverðri sætu, en jafnframt góðri sýru sem heldur aftur af sætunni og viðheldur léttleika og ferskleika vínsins.  Þykkt og feitt."
 
Keller Dalsheimer Hubacker Riesling Spatlese 2002 [vínekra númer 17 - gylltur tappi "goldkapsel"], - 2.690 kr.
Mbl. 20/20
"... Einstakur þéttleiki í ávexti, þarna er allt frá sætum eplum yfir í hitabeltisávexti, hreinleiki bragðsins eins og fagur hörpuhljómur.  Frábært nú þegar en ætti að endast áratug til viðbótar."
 
Keller Dalsheimer Hubacker Riesling Auslese 2002. - 2.790 kr.
Mbl. 20/20 (WS 92)
"...er þyngra, greina má reyk í bland við ávöxtinn.  Sætan er meiri en sýran heldur áfram að vega hana upp.  Steinefnamikið vín með sætum apríkósum, greip og ferskjum áberandi, einstaklega létt miðað við það hversu mikið vín þetta er.  Það sama á við hér, sýran er það mikil að þetta vín ætti vel að lifa áratug til viðbótar."
 
Um Keller Segir Steingrímur ennfremur: "Þetta eru vín sem eru í stjarnfræðilegri fjarlægð frá tískuvínum Nýja heimsins.  Létt í áfengi, 7.5-8.5%, með töluverðri sætu í ilm og bragði en búa engu að síður yfir gífurlegum ferskleika og magnaðri dýpt í bragði sem fáir leika eftir.  Þetta eru sæt vín en samt varla "sætvín".  Fyrst og fremst mögnuð vín sem vínunnendur ættur að gefa gaum.  Reynið þau til dæmis með gæsalifur eða grænum mygluostum á borð við Roquefort eða Gorgonzola."  Það er rétt að þetta eru sko engin tískuvín en það gerir þau bara meira heillandi, t.d. er Spatlese 17 aðeins framleitt í 500 flöskum.  Að upplifa hið einstaka gefur lífinu meira gildi.
 
Vínin frá Falesco voru líka að gera það afar gott í sömu grein:
 
Falesco Vitiano 2002, - 1.390 kr.
Mbl. 18/20
"... Þetta er ungt vín, alþjóðlegt í stílnum en að sama skapi með áberandi ítölsk einkenni.  Þroskuð rauð ber og mikið af dökku súkkulaði, eikin ung, frönsk og áberandi út í gegn frá nefi og í gegnum bragðið.  Þetta er mikið vín fyrir verðflokkinn og svo sannarlega mjög góð kaup."
 
Falesco Montiano 2000, - 3.290 kr.
Mbl. 20/20 (Parker 94)
"...er Merlot-vín frá Lazio [fylki á Ítalíu með Róm sem höfuðborg] í hæsta gæðaflokki.  Kirsuberjamauk og krækiberjasafi, dökkt nýmalað kaffi, nokkur eik, ristað brauð og vanilla.  Mýktin í munni er mikil en þykktin sömuleiðis.  Þar kemur fyrst og fremst djúpur og bragðmikill ávöxtur fram í bland við lakkrís.  Einstaklega góður Ítali."
 
 
Njótið heil,
Arnar
 
Til baka

Vínpósturinn

Eldri Vínpóstur

16. febrúar 2006

02. febrúar 2006

05. janúar 2006

21. desember 2005



16. september 2005



05. ágúst 2005


04. júlí 2005

04. júlí 2005








11. febrúar 2005

25. janúar 2005

10. janúar 2005

16. desember 2004

13. desember 2004

09. desember 2004



16. nóvember 2004

25. október 2004

22. október 2004

03. september 2004


13. ágúst 2004

03. ágúst 2004

28. júlí 2004





07. júní 2004

04. júní 2004


13. maí 2004

07. maí 2004



23. mars 2004

12. mars 2004



11. janúar 2004

26. desember 2003



01. desember 2003

27. nóvember 2003


06. október 2003

05. september 2003


05. ágúst 2003

01. ágúst 2003

24. júlí 2003

16. júlí 2003

10. júlí 2003

18. júní 2003

12. júní 2003

03. júní 2003

03. júní 2003



"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway