Póstlisti Vín & Matur 7.5.2004
 
Góðan daginn,
 
 
Í þessum pósti:
-- Síðustu Ítölsku dagarnir í Vínbúðunum
-- Porcellana súkkulaði
-- Rietine TIZIANO 1997
-- Nýr listi yfir öll vínin okkar
 
 
- - - - - - - - - - - - - - - - - - -
 
 
ÍTÖLSKUM DÖGUM AÐ LJÚKA
 
Ítalskir dagar í Vínbúðunum hafa gengið mjög vel.  Ánægja viðskiptavina Vínbúðanna sést vel á aukinni sölu þeirra víntegunda sem hafa verið á sérstökum kynningarverðum.    Hver fer að verða síðastur - kynningunni lýkur á morgun !
 
Okkar vín á Ítölskum dögum:
Falesco Vitiano 1.260 kr (í stað 1.390)
Firriato Altavilla 1.290 (í stað 1.590 - nýtt verð verður 1.490 eftir kynningu)
Firriato Alcamo Bianco 1.090 (í stað 1.290)
 
- - -
 
NÝTT SÚKKULAÐI FRÁ AMADEI
 
Þegar við fengum Amadei súkkulaði í fyrsta sinn gátum við ekki keypt dýrasta og fágætasta súkkulaðið þeirra - það var uppselt.  Nú er það hins vegar komið til landsins og fæst á kaffihúsum Kaffitárs.  PORCELLANA (70% kakó) er nafnið á bauninni sem súkkulaðið heitir eftir.  Einkennin eru ótrúleg - þykkt og mikið kakóbragð í bland við tóna af þurrkuðum og ferskum ávöxtum, sýran ekki eins áberandi og í sumum öðrum súkkulöðum frá Amedei.  Framleitt í 2000 handnúmeruðum eintökum. 
 
Á Kaffitár er hægt að fá allar tegundir Amedei-súkkulaðis í litlum stykkjum með kaffinu - tilvalið til að prófa hinar ýmsu ólíku tegundir.
 
- - -
 
TIZIANO 1997 uppselt !
 
Ekki tókst að anna eftirspurn eftir þessu ágæta víni og hefur það því dottið út úr sölu í Vínbúðunum.  Mér tókst þó að kaupa allar flöskurnar af þessu víni sem Galina og Mario Gaffuri áttu eftir.   Reglur ÁTVR segja að vara sem dettur út má ekki koma aftur inn fyrr en eftir 1 ár !... og því verður einungis hægt að sérpanta vínið.  Hafið samband sem hafið áhuga - aðeins 36 flöskur. 
 
Wine Spectator segir um Tiziano 1997:
 
"Solid, muscular wine. Fantastic aromas of crushed berries, minerals, cigar tobacco and wood. Full-bodied and chewy, with big, juicy tannins and a long, ripe, smoky aftertaste. One of Tuscany's sleepers, maybe one of Italy's. Best after 2005. 500 cases made."  94 stig af 100.
 
- - -
 
NÝR VÍNLISTI
 
Margir á þessum lista hafa bent á nauðsyn þess að hafa öll vínin okkar á blaði sem jafnvel væri hægt að taka með sér í Vínbúðirnar.  Í viðhengi fylgir endurbættur listi, ég hef reynt að koma honum á eitt A4 blað svo þið afsakið ef hann "lúkkar" ekki vel.
 
 
bestu kveðjur og góða helgi,
Arnar
Til baka

Vínpósturinn

Eldri Vínpóstur

16. febrúar 2006

02. febrúar 2006

05. janúar 2006

21. desember 2005



16. september 2005



05. ágúst 2005


04. júlí 2005

04. júlí 2005








11. febrúar 2005

25. janúar 2005

10. janúar 2005

16. desember 2004

13. desember 2004

09. desember 2004



16. nóvember 2004

25. október 2004

22. október 2004

03. september 2004


13. ágúst 2004

03. ágúst 2004

28. júlí 2004





07. júní 2004

04. júní 2004


13. maí 2004

07. maí 2004



23. mars 2004

12. mars 2004



11. janúar 2004

26. desember 2003



01. desember 2003

27. nóvember 2003


06. október 2003

05. september 2003


05. ágúst 2003

01. ágúst 2003

24. júlí 2003

16. júlí 2003

10. júlí 2003

18. júní 2003

12. júní 2003

03. júní 2003

03. júní 2003



Once ... in the wilds of Afghanistan, I lost my corkscrew, and we were forced to live on nothing but food and water for days.

W. C. Field