Póstlisti Vín & Matur 21.5.2004
 
Góðan daginn,
 
 
RIETINE CHIANTI CLASSICO ER KOMIÐ AFTUR
 
Rietine Chianti Classico sem hefur verið ófáanlegt í einhverjar vikur er nú komið aftur í Vínbúðirnar Heiðrúnu og Kringlunni.  Þetta er nýr árgangur 2002.  Sá árgangur var erfiður víða á Ítalíu vegna fremur lágs hitastigs og mikilli rigninga.  Ég minnist þess t.d.. að hafa verið á rölti í Flórens ásamt Ingó mági mínum þegar yfir okkur dembtist þessi þvílíka rigning.  Þegar við náðum áfangastað í vínbúðunni Enoteca Bonatti var okkur tjáð að í þessum sama stormi hafi rignt hagli norðar á Ítalíu, t.d. á Valpolicella og Amarone vínekrurnar í kringum Veróna og ollið þar miklum skemmdum á berjum og ungum vínvið.  Hættan á tíðum rigningum er líka sú að berin gleypi í sig of mikinn vökva og verði vatnskennd, en einnig að sýrustig verði of hátt ef lítið sést til sólar (minni sól  = minni þroski = súrari ber).
 
Þessa galla er hvergi að finna í Rietine Chianti Classico 2002.  Í venjulegu ári framleiða Gaffuri hjónin tvö metnaðarfyllstu vín sín þ.e. Chianti Classico RISERVA og TIZIANO frá bestu vínekrum sínum þar sem vínviður hefur náð ákveðnum þroska og jarðvegur og loftslag sem ákjósanlegast (yfirleitt þær vínekrur sem liggja hæst og til suðurs).  2002 voru þessi tvö vín ekki framleidd heldur voru allar þessar þrúgur settar í staðinn í litla bróður, Chianti Classico.  Og þar sem Tiziano er að mestu leyti úr þrúgunni Merlot er óvenju hátt hlutfall af þeirri þrúgu í 2002 árganginum af Chianti Classico.  Í erfiðu árferði sem þessu þá reynir líka á hæfileika og ástríðu framleiðandans til að kemba vínekrurnar dag eftir dag og týna aðeins þær þrúgur sem náð hafa viðunandi þroska en henda einfaldlega hinum eða selja til þeirra sem kjósa magn umfram gæði.
 
Hver sem ástæðan er þá kom það skemtilega á óvart hvað 2002 árgangurinn af þessu víni er góður.  Greinilegt að Mario Gaffuri er einn af þeim framleiðendum sem geta framleitt gott vín sama hvert árferðið er.  Eina sem gerist er að karakter vínsins breytist en ekki endilega gæði þessi.
 
Rietine Chianti Classico 2002 hefur þannig annan persónuleika en 2001.  Rietine 2002 hefur t.d. mildari tannín en 2001 og því aðgengilegra strax svo ungt - er sætara í munni, kjötmeira og angar af þroskuðum, dökkum kirsuberjum fremur en villtum skógarberjum, jafnvel krækiberjum sem einkenndu 2001.  Rietine 2002 hefur þó enn sterkan brag af þeim karakter sem mér finnst mest heillandi í fari 2001; sveitalegan þokka.  Þetta persónulega vín er eins langt frá því að vera alþjóðlegt og komist verður.  Uppruni þess er augljós - vínið gæti hvergi annars staðar verið framleitt en í Chianti Classico, á lítilli vínekru við bæinn Gaiole í nágrenni Siena.
 
RIETINE Chianto Classico 2002   1.590 kr  (fæst einungis í Vínbúðunum Kringlunni og Heiðrúnu)
 
  
njótið heil,
Arnar
ps. munið að ólífuolían frá Rietine fæst í KOKKU á Laugaveginum á 1.650 kr.

Til baka

Vínpósturinn

Eldri Vínpóstur

16. febrúar 2006

02. febrúar 2006

05. janúar 2006

21. desember 2005



16. september 2005



05. ágúst 2005


04. júlí 2005

04. júlí 2005








11. febrúar 2005

25. janúar 2005

10. janúar 2005

16. desember 2004

13. desember 2004

09. desember 2004



16. nóvember 2004

25. október 2004

22. október 2004

03. september 2004


13. ágúst 2004

03. ágúst 2004

28. júlí 2004





07. júní 2004

04. júní 2004


13. maí 2004

07. maí 2004



23. mars 2004

12. mars 2004



11. janúar 2004

26. desember 2003



01. desember 2003

27. nóvember 2003


06. október 2003

05. september 2003


05. ágúst 2003

01. ágúst 2003

24. júlí 2003

16. júlí 2003

10. júlí 2003

18. júní 2003

12. júní 2003

03. júní 2003

03. júní 2003



.
"But then of course Cassis tastes better at Cassis! Debussy sounds better after a walk through the foggy, puddled streets of latenight Paris. You are in the midst of the atmosphere that created it. The wine is not different, the music is not different. You are."
- Kermit Lynch