Póstlisti Vín & Matur 3.9.2004
Góðan daginn,
Í tölvupósti sem ég fékk rétt áðan frá Þorra Hringssyni rétt áðan, myndlistarmanni og vínrýni fyrir Gestgjafann, lét hann einfaldlega þessi stuttu orð falla um vínið sem ég ætla að fjalla um í dag: "Frábært vín !"
- - - - - - - - - - - - - - -
2001 PETIT VERDOT - Casa de la Ermita
Petit Verdot er sjaldgæf þrúga í Bordeaux. Hún þykir nokkuð erfið viðeignar, t.d. þroskast hún seint og berin eru lítil þannig að plantan gefur minna af sér. Helstu kostir hennar birtast þegar hún nær réttum þroska þ.e. dökkur litur, sterk tannín og hátt sykurmagn. Vegna þessara eiginleika er hún notuð til blöndunar Bordeaux vína, aðallega frá Medoc, þar sem hún getur vegið upp á móti og bætt veikleika hinna þrúganna; Merlot, Cabernet Sauvignon og Cabernet Franc.
Afar fáir framleiðendur í veröldinni virðast treysta sér til þess að búa til vín sem er eingöngu úr þessari þrúgu. Það er þó ekki að sjá á Petit Verdot frá Casa de la Ermita (Jumilla-Spánn) að fæðingin hafi verið sérstaklega erfið. Það er unun að drekka þetta kröftuga vín, með ótrúlega þykkum ávexti krydduðum mátulegri eik og vanillu eftir 12 mánuða legu í frönskum og amerískum eikartunnum. En þetta er ekki BARA bomba því undir niðru kraumar jarðvegurinn sem undirstrikar aðra eiginleika vínsins og færir því aðra vídd.
Fyrir áhugamenn/konur um kóngafólk má líka geta þess að spænska prinsinum fannst það svo gott að það var valið til smökkunar fyrir giftingarveislu prinsins síðastliðið vor. Það komst í úrslit þar sem það var að lokum slegið út fyrir einhverju Rioja víni - að mér skils vegna þess að umsjónarmenn brúðkaupsins vildu hafa þekkt vörumerki Spánar á boðstólum (þ.e. Rioja).
Það var boðið upp á þetta vín á smökkun í versluninni KOKKU á Laugaveginum, þar sem meðlimum póstlistans var boðið, og var gerður góður rómur að því.
Casa de la Ermita - 2001 PETIT VERDOT
2.390,- kr
fæst eingöngu í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni.
Njótið heil,
Arnar