Póstlisti Vín & Matur 22.10.2004
Góðan daginn,
VÍN & MATUR Á LA PRIMAVERA
Fimmtudaginn 4. nóvember næstkomandi verður Vín & Matur með kvöldverðarveislu á La Primavera. Markmiðið er að njóta saman víns og matar í hæsta gæðaflokki. Innan skamms sendi ég matseðil kvöldsins en á honum verða fjórir réttir. Vínin með matnum verða einnig fjögur og eru sem hér segir:
Með forrétti:
Appiano - St. Valentin Gewurztraminer 2003
Með fiski:
Appiano - St. Valentin Pinot Nero 2000
Með aðalrétti:
Foradori - Granato 2001
Með eftirrétti:
Alberto Ferrari - Solaria Jonica 1959
Verð 9.900,- kr
Vinsamlegast takið frá sæti með því að svara þessum pósti. Ath. sætafjöldi takmarkast við 20 manns.
Bestu kveðjur,
Arnar