Póstlisti Vín & Matur 16.11.2004
 
Góðan daginn,
 
 
Þar sem undirritaður vísar oft í víndóma Roberts Parker þá er rétt að kynna manninn örlítið betur.
 
- - - - -
 
ROBERT PARKER
 
Robert Parker gefur út bækur, heldur uppi vefsíðu með stórum gagnabanka og hefur frá árinu 1978 gefið út tímaritið The Wine Advocate.  Hann er lögfræðingur að mennt og starfaði sem slíkur þar til vínástríðan gagntók hann.  Hann er án efa virtasti og áhrifamesti vínrýnir samtímans.  Hann þiggur engar sporslur frá framleiðendum né ókeypis sýnishorn heldur kaupir sjálfur það sem hann gagnrýnir.


Í tímaritinu The Wine Advocate er hugsanlega að finna besta safn upplýsinga um hvaða vín skuli kaupa, bæði fyrir almenna neytendur, safnara og vínkaupmenn.  Í blaðinu eru engar auglýsingar, engar myndir - aðeins þéttur texti þar sem fjöldi framleiðanda er tekinn fyrir frá ákveðnum svæðum, fjallað um vín þeirra og gefnar einkunnir.
 
- - - - -
 
Bomburnar og riddarinn
 
Parker hefur verið sakaður um að gefa of háar einkunnir fyrir þau vín sem eru ávaxtarík og eikuð, svokallaðar "bombur" eða "blockbusters", á kostnað vína sem leggja meira upp úr "terroir" (staðbundin einkenni fengin m.a. úr jarðvegi) eða matarvína, þ.e. vín sem eru djúsí og sexí frekar en einlæg og háttvís. 
 
Vín sem falla undir síðarnefnda hópinn koma aðallega frá Ítalíu og Frakklandi.  Umfjöllun Parkers um þessi tvö lönd er þó ekki verri en svo að árið 1993 hlaut hann Chevalier dans l'Ordre National du Merito úr hendi Mitterands og 1999 Chevalier dans l'Ordre de la Legion d'Honneur úr hendi Chiracs og lét Chirac af því tilefni eftirfarandi orð falla:
 
"Robert Parker er áhrifamesti gagnrýnandi franskra vína, eitthvað sem ég varð vitni að nýlega þegar ég valdi vín fyrir Clinton forseta Bandaríkjanna sem vísaði sjálfkrafa til Roberts Parker þegar hann vildi sjálfur velja sér vín af kostgæfni."
 
Á þessu ári 2004 var Parker svo veitt úr hendi Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, og Ciampi, forseta Ítalíu, ein æðsta viðurkenning landsins Commendatore in Ordine al Merito della Repubblica Italiana.  Hann er fyrsti vínrýnirinn sem hlýtur þessa viðurkenningu - fyrir störf sín og það mikilvæga hlutverk sem hann hefur gegnt í að upplýsa neytendur um gæði ítalskra vína.
 
Parker er einn örfárra útlendinga sem hafa hlotið þessi ígildi íslensku fálkaorðunnar (og stórriddarakrossins) í Frakklandi en hefur nú sem sagt bætt við sig einni ítalskri að auki.
 
- - - - -
 
Gæði
 
Nýlega var bent á að Parker veitti fleiri áströlskum vínum framúrskarandi einkunn heldur en vínum frá 2000 árgangi Bordeaux sem talinn er einn sá besti frá upphafi.  Þannig fengu hvorki meira né minna en 111 áströlsk vín einkunnina 95 og yfir en einungis 44 Bordeaux 2000 vín náðu svo góðum árangri.  Einhverjum kynni að finnast þessi stóri munur hneykslanlegur þar sem Bordeaux er elsta, virtasta og hugsanlega besta vínsvæði veraldar en þó verður að benda á tvennt: a) það er verið að bera saman heila þjóð (Ástralíu) við takmarkað svæði annarrar þjóðar (Bordeaux í Frakklandi) b) Flestir gæðaframleiðendur í Ástralíu gera fjölmörg hágæðavín í afar litlu upplagi á meðan hver framleiðandi í Bordeaux einbeitir sér einungis að einu stórvíni og þá í talsvert góðu upplagi - margfalt stærra heldur en af hefðbundnu gæðavíni frá Ástralíu.  Í flöskum talið er fjöldi flaska yfir 95 stigum skv. Robert Parker því í raun mun meiri í Bordeaux en í Ástralíu.  Engu að síður endurspeglan niðurstaðan mikla sókn Ástralanna upp á stjörnuhiminn vínsins - ergo, niðurstöður Parkers virðast ekki í ósamræmi.
 
- - - - -
 
Smekkur
 
Stundum finnst manni eitthvert vín eiga að fá hærri eða lægri einkunn en um það snýst líka þessi áhugaverði heimur vínsins...forvitni og opið hugarfar - nauðsynlegt, fróðleikur - gagnlegur, en umfram allt.... smekkur hvers og eins.  Smekkur Parkers er, þegar öllu er á botninn hvolft, hans eigin persónulega skoðun.
 
 
"...for countless wine lovers, Robert Parker's tastes are infallible." - Time Magazine
 
"Parker has revolutionized American wine criticism, and... has brought the stringent standards of a fanatic, the high moral purpose of a reformer." - Newsweek
 
"The Wine Advocate is the best for guiding the consumer through the labyrinth of Burgundy and Bordeaux." - Forbes Magazine
 
"His influence is unparalled in the history of wine journalism." - Decanter
 
"Parker is the most influential wine writer in the world today." - Los Angeles Times
 
"The world's most experienced and trustworthy taster." - Jancis Robinson
 
"Robert Parker is the most followed and influential critic for french wines in the entire world." - Jacques Chirac
 
 
Bestu kveðjur,
Arnar

Til baka

Vínpósturinn

Eldri Vínpóstur

16. febrúar 2006

02. febrúar 2006

05. janúar 2006

21. desember 2005



16. september 2005



05. ágúst 2005


04. júlí 2005

04. júlí 2005








11. febrúar 2005

25. janúar 2005

10. janúar 2005

16. desember 2004

13. desember 2004

09. desember 2004



16. nóvember 2004

25. október 2004

22. október 2004

03. september 2004


13. ágúst 2004

03. ágúst 2004

28. júlí 2004





07. júní 2004

04. júní 2004


13. maí 2004

07. maí 2004



23. mars 2004

12. mars 2004



11. janúar 2004

26. desember 2003



01. desember 2003

27. nóvember 2003


06. október 2003

05. september 2003


05. ágúst 2003

01. ágúst 2003

24. júlí 2003

16. júlí 2003

10. júlí 2003

18. júní 2003

12. júní 2003

03. júní 2003

03. júní 2003



"It was with a delicious feeling of lightheadedness and supreme contentment that, in the late afternoon, I paid my bill, bid an affectionate farewell to M. Point, and went out into the garden."
- Joseph Wechsberg