Þetta vín fékk 19/20 Í Morgunblaðinu.
St. Eppan (San Michele Appiano) - Pinot Grigio ANGER (þrúga: pinot grigio)
"... Utan um þetta er einnig mjúk fiturönd og af og til gýs upp lykt af nýju smjöri. Þetta er yndislega fersk, hrein og óeikuð angan. Í munninum er það ríflega meðalbragðmikið, sýrumikið og frísklegt með glefsur af sítrónu, appelsínu, greipaldini, hunangi og apríkósu. Vel byggt, rismikið og býsna langt vín sem er frábært með mat, t.d. flestum fiskréttum, ljósu pasta, bökum og hvítmygluostum." 4 glös.
Þetta vín fékk 18/20 í Morgunblaðinu.
Að auki var mælt með öðru víni frá St. Eppan, nefnilega St. Valentin Gewurztraminer... með hreindýra-sushi (bls.48).
Svo kemst ég ekki hjá því að minnast á að í greininni "Jólavín Sælkeranna" (bls 86-90) er undirritaður einn af sælkerunum góðu sem átu og drukku á Skólabrú í nóvember.
- - - - -
PETIT VERDOT
Svo var gagnrýni um vínið spánska vínið Petit Verdot frá Casa de la Ermita í Morgunblaðinu um helgina.
"...er athyglisvert spænskt rauðvín úr þrúgunni petit verdot. Hefur þykka sæta angan, hnetusúkkulaði, Basset's konfekt [!???], kirsuberjamauk, kryddað allt að því beiskt. Í munni þykkt og sýrumikið, með örlitlum keim af spíra. " 18/20.
- - - - -
NÝTT Í KJARNA
Fyrir utan hvítvínið Casal di Serra frá Umani Ronchi (1.350 kr) fást nú tvö ítölsk rauðvín frá Vín & Mat í kjarna Vínbúðanna; Vitiano frá Falesco í Umbria (1.390 kr) og Santagostino frá Firriato á Sikiley (1.690 kr).
Njótið heil,
Arnar