Póstlisti Vín & Matur 2.5.2005
Góðan daginn,
Í þessum pósti:
-- Castello di Querceto
-- "...aðalberjasulta..." Gagnrýni í Gestgjafanum
-- Áhugaverðar vefsíður: Vínbændagisting á Ítalíu eða Hallardvöl í Frakklandi ?
-- BLOGG
- - - - - - - - - -
CASTELLO DI QUERCETO
Þessi ágæti framleiðandi er einn þeirra sem bættust í hillur Vínbúðanna fyrir u.þ.b. mánuði síðan. Tvö vín eru fáanleg frá honum; Chianti Classico 2003, 1.690 kr., og Chianti Classico Riserva 2000, 2.190 kr. Bæði vínin fengu 18/20 fyrir tveimur vikum síðan í Morgunblaðinu og fyrirtaks umsögn.
Þennan framleiðanda heimsótti ég fyrst árið 2001 þegar ég bjó á Ítalíu um það leiti sem uppskeran var að bresta á - ég smakkaði nokkur ber beint af vínviðunum og kom mér þá á óvart bæði hversu smátt og sætt Sangiovese berið er.
Ég setti mig svo aftur í samband við Sig. Francois, eiganda kastalans, þegar ég var að leita að vínum í 187ml flöskum til að selja á business class Flugleiða. Vínið fór fyrir smakkhóp Flugleiða (Einar Thor., Þorri, Steingrímur ofl) og var valið úr stórum hópi umsækjenda og er nú fáanlegt á Evrópulegg Flugleiða-business class. Þetta Chianti vín er ekki það sama og fæst í Vínbúðunum heldur reyndar einu skrefi neðar í gæðastiga fyrirtækisins.
Svo verð ég að minnast á að Riserva vínið hefur verið valið tvö ár í röð á Top 100 lista tímaritsins Wine Spectator. Síðast var það fyrir 2000 árganginn sem nú fæst einmitt í Vínbúðunum. Ég á alltof lítið af þessu víni en ætla að reyna að fá meira.
- - - - -
GAGNRÝNI Í GESTGJAFANUM
"Umbria á Suður-Ítalíu [innsk.: frekar Mið-Ítalía] er um þessar mundir einn "heitasti" staðurinn á Ítalíu... Einir af athyglisverðustu framleiðendunum á þessum slóðum eru Arnaldo Caprai og sonur hans, Marco....Vínið hefur mjög þéttan lit ... og meðalopna angan sem sannarlega er ítölsk. ...vel byggt og langt með sérlega skemtilegan karakter. Mjög góð kaup." 4/5 glös.
Arnaldo Caprai - Montefalco Rosso 2001
1.890 kr
fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu og Kringlunni
- - - - -
VÍNBÆNDAGISTING Á ÍTALÍU
Á Ítalíu er bændagisting kölluð agriturismo og getur hún spannað frá einfaldri og ódýrri gistingu í hinn mesta lúxus. Oft búa eigendurnir í sama húsi eða nálægt og yfirleitt er sundlaug, stundum jafnvel veitingastaður. Hvergi er eins mikið af bændagistingu og í Toskana héraði og ekki vitlaust fyrir áhugasama vínunnendur að velja sér vínbónda frekar en... svínabónda.
Framleiðendur Víns & Matar í Toskana bjóða allir upp á bændagistingu; Castello di Querceto í Greve, Fontodi í Panzano og Rietine (La Spugna) í Gaiole.
Hér er svo ein góð síða þar sem er að finna urmul af svona gistimöguleikum www.agriturismo.com
- - - - -
HALLARGISTING Í FRAKKLANDI
Í Brúðkaupsferð okkar Rakelar í Frakklandi pöntuðum við eingöngu gistingu gegnum Chateaux et Hotels samtökin sem bjóða upp á gistingu m.a. í höllum landsins. Hallirnar/húsin geta verið hálfgerð hótel eða meira í anda bændagistingar. Einnig hótel í París. Gistimöguleikar á öllum verðum.
Önnur samtök eru Relais et Chateaux sem bjóða eingöngu uppá lúxus. Samtökin teygja anga sína út fyrir Frakkland og er Hótel Holt eini meðlimurinn hér á landi.
- - - - -
BLOGG
Allt vitlaust á blogginu - kíktu.
Lifið heil,
Arnar
Sendu póst á vinogmatur@internet.is merktan "afskrá" ef þú vilt láta fjarlægja þig af þessum póstlista. Takk fyrir samfylgdina.