Póstlisti Vín & Matur 2.3.2005
Góðan daginn,
í þessum pósti:
-- VÍN MÁNAÐARINS í Gestgjafanum
-- TORBRECK í Vínbúðum + gagnrýni í Morgunblaðinu
-- Vínkynningar og netfangasöfnun
-- RIETINE ÓLÍFUOLÍAN komin aftur
-- Icelandair fær viðurkenningu fyrir vínlista á business class
-- GORDON RAMSEY á blogginu
- - - - - - - - - -
VÍN MÁNAÐARINS
Gestgjafinn er ekki enn kominn út þegar þetta er skrifað en Þorri sagði mér þegar ég ræddi við hann áðan að Petit Verdot 2001 frá Casa de la Ermita yrði Vin Mánaðarins í næsta tölublaði. Ég veit því ekki hvað hann segir nákvæmlega í blaðinu en einu sagði hann mér að þetta væri "frábært vín" og það nægir mér.
Ég gæti bætt við í mjög stuttu máli ...þetta er safaríkur bolti með jarðlegum undirtónum sem gera hann flókinn og áhugaverðan.
Vínið er á kynningarverði á spænskum víndögum í Vínbúðunum og kostar nú 2.290 kr í Heiðrúnu og Kringlunni.
- - - - -
TORBRECK
Nú fást þrjú vín frá ástralanum Torbreck í vínbúðunum; hvítvínið Woodcutter's Semillon 2003 og rauðvínin Juveniles 2003 og The Steading 2002 (mjög takmarkað magn). Vínin hef ég fjallað um áður á þessum póstlista og fjölyrði því ekki um þau hér.
Steingrímur fjallaði um þessi vín í Mogganum á sunnudaginn og fengu þau eftirfarandi einkunnir:
- Woodcutter's Semillon 16/20 "feitur og þykkur hitabeltisávöxtur"
- Juveniles 16/20 "ávöxturinn því algjörlega í fyrirrúmi, mjúkur og allt að því væminn."
- The Steading 19/20 "Það vín frá Torbreck ... er féll best að mínum smekk."
- The Struie (sérpöntun) 19/20 "Fyrir þá sem unna áströlskum Shiraz er ... skylda að bragða á þessu víni."
Einkunn fyrir tvö hin síðari er afar góð en fyrir hin tvö get ég ekki sagt að ég sé beinlínis sáttur - þau eru mun betri en einkunn gefur til kynna. Annað hvort vegur verðið svona mikið í einkunnagjöf Steingríms eða þá að hann er yfir höfuð ekki yfir sig hrifinn af áströlskum vínum. Hann kvartar yfir háu verði á Semillon en ég bendi á að vínið hefur Oz Clarke kallað "good value" í 2005 vasavínbók sinni. Hvorki hár flutningskostnaður né óeðlileg álagning eru á þessu víni. Ég fullyrði að þetta hvítvín er eitt það besta frá Ástralíu í Vínbúðunum. Síðan segir hann Juveniles vera "nær einum of aðgengilegt" ...en sumum þætti nú aðgengileiki bara vera kostur - bara ef stelpurnar sem ég reyndi við í gamla daga hefðu allar verið svona aðgengilegar. Allavegana, eitt sérstakasta vín í vínbúðunum í dag og eitthvert mýksta og ávaxtaríkasta vín sem ég hef smakkað, með nánast portvínsþéttleika í bæði nefi og munni - KONUVÍN, skrifaði ég í nóturnar mínar og er þá mikið sagt.
En... það hlaut að koma að því að við Steingrímur yrðum ekki sammála.
Parker í The Wine Advocate hafði hins vegar þetta að segja:
"The 2003 Juveniles is a virgin, unoaked blend of 60% Grenache, 20% Mourvedre, and 20% Shiraz. There are 6,000 cases of this peppery cuvee that offers up notes of roasted meats, saddle leather, and kirsch liqueur in a medium-bodied, well-defined, exuberant, flavorful format. It tastes like a high class Cotes du Rhone from the ocean of vineyards known as the Plan de Dieu in the Vaucluse. Drink this knock-out red over the next 2-3 years. 90 Points. "
- - - - -
VÍNKYNNINGAR og NETFANGASÖFNUN
Nú er blásið til sóknar. Þeir sem geta safnað 5 netföngum og sent mér (með leyfi viðkomandi að sjálfsögðu) til að bæta á póstlistann fá svarta bómullarsvuntu merkta Umani Ronchi senda í pósti.
Kynningar í heimahúsum, fyrirtækjum eða á völdum stöðum eru m.a. liður í sókn fyrirtækisins og felst í því að ÉG mæti með glös og vín og gef YKKUR að smakka. Kostnaður er miðaður við verð vína út úr ÁTVR og deilist á þáttakendur - ég rukka ekkert fyrir kynninguna sjálfa.
- - - - -
RIETINE ÓLÍFUOLÍA
Já, olían vinsæla fæst nú aftur í Kokku eftir að hafa verið uppseld. Þetta er árgangur 2004 og er hún því fersk og brakandi akkúrat núna. Fæst í Kokku á Laugaveginum.
- - - - -
CELLAR IN THE SKY AWARD
Flugfélagið "okkar", ICELANDAIR, var í öðru sæti í Annual Airline Wine Competition yfir bestu vínlista á business-class hjá tímaritinu Business Traveler. Ha...! segjum við sem ferðumst alltaf á economy og könnumst ekki beinlínis við þessi gæði þar afturí.
Vín & Matur vill eigna sér svona 10% í þessum ágæta heiðri enda hafa vínin okkar Umani Ronchi Casal di Serra og Firriato Altavilla fengist á þessum verðlaunalista síðastliðið ár.
- - - - -
GORDON RAMSEY - BOXWOOD CAFÉ
Umfjöllun um þennan veitingastað í London og fleira á blogginu...
Lifið heil,
Arnar