Póstlisti Vín & Matur 29.3.2005
 
Góðan daginn,
 
 
í þessum pósti:
-- Nýtt í Vínbúðunum: ARTAZURI 2003
-- "sex on wheels", Oz Clarke um Grenache
-- Nýtt í Vínbúðunum: ARTADI Vinas de Gain 2002
-- Nýtt í Vínbúðunum: FIRRIATO Chiaramonte RAUTT og HVÍTT
-- Áhugaverðar vefsíður
-- Uppfærður vörulisti
 
- - - - - - - - - -
 
ARTAZURI 2003
1.290 kr
fæst í Heiðrúnu og Kringlunni
 


"This 100% Grenache from the Navarra region of Spain is another astonishing find from importer Eric Solomon. Inky and concentrated, it's a Grenache that holds something back. More than just another pretty wine, it tastes like dark plums and berries, yet it's perfectly dry and has more depth than you have any right to expect in a seemingly simple country wine for under $10. Wow. Great with just about anything — roast chicken, grilled meats, anything you throw on the barbecue."
- LA Times, Wine of the Week
 
“This 3,000-case cuvee must be tasted to be believed. It tastes like a $35-50 bottle of wine. Sumptuous and opulent, gorgeously perfumed, tremendous purity of fruit, a medium to full-bodied texture, and a finish that remains light on its feet, it is a Spanish Chateauneuf du Pape. An amazing achievement ...bravo!" 92/100
- Robert Parker The Wine Advocate (um 2001 árg., 2003 hefur ekki verið gagnrýndur enn)
 
- - - - - - - - - -
 
OZ CLARKE um GRENACHE
 
"Grenache is for me the wild, wild woman of wine, the sex on wheels... don´t say I didnt warn you"
- Oz Clarke, Grapes and Wines
 
Rauðvínsþrúgan Grenache er uppistaða vínanna í Chateauneuf-du-Pape í Rhone, Frakklandi.  Þar blandast hún ýmsum öðrum þrúgum t.d. Shiraz og Mourvedre.  Ástralir hafa kóperað þessa blöndu og skammstafa hana GSM - bæði Juveniles og The Steading frá Torbreck eru dæmi um slíka blöndu (60% Grenache). 
 
Á Spáni kallast þrúgan Garnacha og á hún stóran þátt í að búa til einhver mest spennandi víns landsins í Priorato.  Artazuri kemur frá Navarra héraðinu þar sem þrúgan er 45% af heildarframleiðslu.
 
Helstu einkenni þrúgunnar:
Ljós litur, sætleiki og hátt áfengismagn.  Í nefi má oft finna soðin jarðaber og karamellu, mikill ávöxtur í munni, sýran lág og tannín mild.  Litur og angan minna stundum á Pinot Noir en vínið er þó mun sætara og ekki eins fágað.
 
"Garnacha Tinta is a mediterranean grape par excellence.  It clings to those warm lands as tenaciously as a tourist from northern Europe on holiday and like that tourist, it only has one thing on its mind: pleasure,..."
Oz Clarke, Grapes and Wines
- - - - - - - - - -
 
ARTADI - VINAS DE GAIN 2002 (RIOJA)
1.890 kr
fæst í Heiðrúnu og Kringlunni
 


Framleiðendur Artazuri, sem fjallað var um hér ofar, eiga líka Artadi víngerðina í Alavesa/Rioja.  Um Artadi fjallaði ég á þessum póstlista 11.2 og læt því duga að minna á að nú er þetta frábæra vín fáanlegt. 
 
"A fabulous effor for the price...With extraordinary precision and finesse, great elegance, wonderful sweetness...". 94/100
- Robert Parker, The Wine Advocate (um 2001, 2002 hefur ekki verið gagnrýnt enn)
 
- - - - - - - - - -
 
FIRRIATO - CHIARAMONTE (Rauðvín, 100% Nero D'Avola - Hvítvín, 100% Cataratto)
1.390 kr
fást í Heiðrúnu og Kringlunni
 
Firriato víngerðina á Sikiley þarf ekki að kynna nánar.  Vínin þaðan hafa fengist í Vínbúðunum í eitt og hálft ár og á La Primavera og Holtinu.  Santagostino vínin (hvítt og rautt) fengu bæði 4 glös í Gestgjafanum og hvítvínið var valið eitt af 10 bestu vínum ársins 2003 í Morgunblaðinu.  Undanfarinn mánuð hefur þó aðeins verið hægt að fá hið rauða Santagostino í Vínbúðunum (í Kjarna) þar sem hin hafa dottið úr sölu.
 
Nú hafa tvö ný vín frá Firriato hins vegar bæst í hillurnar og heita þau bæði Chiaramonte, eitt er rautt og hitt er hvítt.  Ég ætla ekki að fjölyrða um þessi vín því þessi póstur er að verða of langur.... kíkið bara á vefsíðu þeirra, ÞAU ERU BÆÐI GÓÐ.  Rauðvínið var valið besta rauðvín Ítalíu undir 8E á síðasta ári af tímaritinu Il Messaggero sem jafnframt valdi Firriato vínframleiðanda ársins. 
 
 "Að framleiða fáeinar þúsundir flaskna af gæðavíni  geta allir gert en að gera það í milljónavís er einstakt"
- Il Messagero um Firriato
 
- - - - - - - - - -
 
ÁHUGAVERÐAR VEFSÍÐUR
 
Viltu vita hvernig vínið sem þú átt í kjallaranum þínum er að drekkast NÚNA - spyrðu !  Marc Squires Bulletin Board... er umræðuvettvangur í sérflokki fyrir vínáhugafólk.  Ég er áskrifandi sjálfur.  Aðgangur ókeypis.
 
Víngagnrýni, vínbókagagnrýni, vínferðalög, matur og vín og margt fleira á http://www.wineanorak.com/
 
http://tastings.com/ Víndómar og VÍNORÐABÓK hjá The Beverage Tasting Institute.
 
- - - - - - - - - -
 
UPPFÆRÐUR VÖRULISTI
 
Prentaðu út viðhengið og taktu með þér næst þegar þú ferð í Vínbúðirnar Heiðrúnu og Kringlunni... ef þú vilt vera viss um að fá eitthvað almennilegt að drekka.
 
 
Njótið heil,
Arnar
 
 
Sendu póst á vinogmatur@internet.is merktan "afskrá" ef þú vilt láta fjarlægja þig af þessum póstlista.  Takk fyrir samfylgdina.

Til baka

Vínpósturinn

Eldri Vínpóstur

16. febrúar 2006

02. febrúar 2006

05. janúar 2006

21. desember 2005



16. september 2005



05. ágúst 2005


04. júlí 2005

04. júlí 2005








11. febrúar 2005

25. janúar 2005

10. janúar 2005

16. desember 2004

13. desember 2004

09. desember 2004



16. nóvember 2004

25. október 2004

22. október 2004

03. september 2004


13. ágúst 2004

03. ágúst 2004

28. júlí 2004





07. júní 2004

04. júní 2004


13. maí 2004

07. maí 2004



23. mars 2004

12. mars 2004



11. janúar 2004

26. desember 2003



01. desember 2003

27. nóvember 2003


06. október 2003

05. september 2003


05. ágúst 2003

01. ágúst 2003

24. júlí 2003

16. júlí 2003

10. júlí 2003

18. júní 2003

12. júní 2003

03. júní 2003

03. júní 2003



"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway