Vín & matur
14. október 2005
--------------------------------------------------------------------------------
SMAKK Í MAÐUR LIFANDI Á MORGUN
Í Maður Lifandi er núna hægt að fá lífræna ólífuolíu, Olio Extra Vergine D.O.P. Chianti Classico, frá Fontodi. Á morgun, laugardaginn 15.10 kl. 13.00-15.00, verður hægt að smakka þessa olíu í splúnkunýrri verslun Maður Lifandi í Hæðarsmáranum (beint suður af Smáranum). Ég verð sömuleiðis með eftirtalin lífræn vín:
- Chianti Classico 2003 frá Fontodi (Ítalía)
- Le Baux de Provence frá Mas de Gourgonnier (Frakkland)
- Ermita lífrænt frá Casa de la Ermita (Spánn)
Svo verður brauð, ólífur, geitaostur og eitthvað fleira.
Sjáumst á morgun,
Arnar